157. löggjafarþing — 48. fundur. aðgerðir gegn peningaþvætti, viðurlög o.fl.
skattar, tollar og gjöld, 3. umræða.
stjfrv., 148. mál. — Þskj. 546, stöðuskjal 336.

ATKVÆÐAGREIÐSLA

[13:46]

[13:40]
Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta er eitt af þessum málum þar sem titill málsins er kannski ekki beint lýsandi fyrir það sem skiptir helst máli í þessu frumvarpi. Málið fjallar ekki nema að hluta og kannski ómerkilegum hluta um peningaþvætti eins og heitið gefur til kynna, heldur var þarna verið að reyna að lauma inn heimild fyrir ríkisskattstjóra til þess að endurgreiða ekki ofgreidda skatta þegar fyrir liggur dómur eða úrskurður yfirskattanefndar um að ekki hafi verið lagaleg heimild fyrir slíkri skattlagningu.

Það er með nokkrum ólíkindum, virðulegur forseti, að hér hafi menn verið að þráast við að halda því fram að frumvarpið sneri ekki að því heldur væri einhver mikil réttarbót fyrir einstaklinga og heimili í landinu og það sé ekki hér fyrr en við lok málsins, við 3. umræðu, að menn sjái sæng sína upp reidda og leggi fram breytingartillögu sem var kallað eftir nánast frá upphafi eða þegar mönnum varð þetta ljóst, breytingartillögu sem Miðflokkurinn mun styðja og kemur í veg fyrir að ríkisskattstjóri fái þessa fráleitu heimild.



[13:41]
Pawel Bartoszek (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér er um að ræða bandorm sem er breytingar á ýmsum lögum. Meðal þess sem hefur verið nefnt er þetta ákvæði hér sem var rætt um í ræðu áðan. Það mátti reyndar skilja af fjölmiðlaumfjöllun að það stæði til að Skatturinn myndi bara hætta að endurgreiða fólki en þarna var um að ræða hvað ætti að gera þegar dómur yfirskattanefndar eða dómstóls hefur fallið og það ákvæði sem þar átti að koma inn var algjörlega sambærilegt því sem var í lögum um virðisaukaskatt. Hins vegar veit ég að til að liðka fyrir þingstörfum og afnema þann misskilning þá hefur formaður nefndarinnar lagt fram breytingartillögu sem þingflokkur Viðreisnar mun styðja.



[13:42]
Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta mál, og einnig það mál sem við vorum að greiða atkvæði um hér áðan, er gott dæmi um að það skiptir máli að hafa góða stjórnarandstöðu í landinu. Sem betur fer er það svo. Hv. stjórnarandstaða vakti t.d. athygli á því í máli sem við greiddum atkvæði um þar á undan, varðandi erfðafjárskattinn — þá var hæstv. ríkisstjórn, og ég vil vekja athygli á þessu, að lauma í gegn miklum skattahækkunum án þess að segja frá því. Ég vek athygli á því sérstaklega í því máli hvernig spunameistarar ríkisstjórnarinnar og stjórnarliðar úthúðuðu þeim hv. þingmönnum sem bentu á hið augljósa, alveg eins og í þessu máli hér. Þrátt fyrir að hv. þm. Pawel Bartoszek sé einhvern veginn að afsaka það að Viðreisn sé að gera rétt þá vil ég bara þakka hv. þingmönnum Viðreisnar fyrir að gera rétt. Það er góð regla og þeir ættu að gera meira af því. En í þessu tilfelli er það þannig að við vorum í þeirri stöðu að hæstv. ríkisstjórn ætti (Forseti hringir.) — það er eitthvað að þessari klukku, hún fer hérna út og suður.

(Forseti (ÞSv): Já, það er eitthvað að klukkunni en þingmaðurinn hefur fengið tímann sinn.)

Þetta er ekki sanngjarnt, virðulegi forseti, þegar maður er hér í miðri ræðu og nógur tími eftir og svo fara menn bara að leika sér í klukkunni á forsetaborðinu.

(Forseti (ÞSv): Það er enginn að leika sér.)

Og allt í einu er tíminn bara búinn. En aðalatriðið er þetta: Hlustið þið bara meira á stjórnarandstöðuna, þá verður þetta miklu betra.



[13:44]
Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka nefndarmönnum í efnahags- og viðskiptanefnd fyrir virkilega gott samstarf um þetta mál. Þetta er nú mikið til tiltektarfrumvarp. Það er verið að taka til í tollalögum, taka til í lögum um tekjuskatt og lögum um virðisaukaskatt og verið að samræma. Það var vissulega þarft atriði sem hv. þm. Sigríður Á. Andersen kom inn á og það var okkur ljúft og skylt að gera þessa breytingartillögu. En ég vil bara undirstrika það hér að vilji löggjafans stendur svo sannarlega til þess að endurgreiða fólki ofgreidda skatta. Það stóð aldrei neitt annað til, ég vil bara fá að segja það. Það stóð aldrei til að greiða fólki ekki til baka ofgreidda skatta. En ég vil enn og aftur þakka fyrir gott samstarf í nefndinni við vinnu þessa frumvarps og þingflokkur Samfylkingarinnar mun segja já við breytingartillögunni sem ég lagði til á laugardaginn.



[13:45]
Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við greiðum hér atkvæði um einn af þessum bandormum sem hefur ýmislegt í för með sér, ýmislegt sem er misáhugavert og misskemmtilegt að styðja. En það eru þarna góðir hlutir til að bregðast við, t.d. vegna þeirra sem hafa notið sértækra úrræða í Grindavík. Svo er annað mál sem mig langaði líka að minnast á varðandi flutning á fjármagni úr landi og annað slíkt. Það er gríðarlega mikilvægt, sem er eitt af þessu sem kemur úr heiti málsins varðandi peningaþvætti og annað, að það mál sé mjög vel kynnt og upplýst svo að okkar helstu borgarar fari ekki að lenda í veseni á flugvellinum og fá sektir, þannig að það sé alveg á hreinu. Svo fögnum við í þingflokki Sjálfstæðisflokksins breytingartillögu sem meiri hlutinn féllst á að leggja hér fram og munum styðja hana sem og málið.



Brtt. 546 samþ. með 54 shlj. atkv. og sögðu

  já:  ArnaJ,  BHar,  DagH,  DBE,  DME,  EÁs,  EyjÁ,  GrímG,  GE,  GÞÞ,  GAS,  GHaf,  HKF,  HildS,  IngD,  IngÞ,  JGH,  JPJ,  JGnarr,  JGunn,  JPZ,  JBÓ,  KGH,  KÁB,  KÞS,  KFrost,  LRM,  LE,  LóaJ,  MRK,  NTF,  PawB,  RÞI,  RGuðb,  SGuðm,  SDG,  SER,  SÁA,  SigurjÞ,  SHP,  SÖH,  SSB,  SMás,  VilÁ,  VíðR,  ÁBH,  ÁLÞ,  ÓA,  ÞorbG,  ÞKG,  ÞorgS,  ÞGB,  ÞórdG,  ÞSv.
5 þm. (HHL,  IIsak,  SIJ,  SVS,  ÞórP) greiddu ekki atkv.
4 þm. (AMöll,  EBB,  IngS,  NMG) fjarstaddir.

Frv.  samþ. með 47 shlj. atkv. og sögðu

  já:  ArnaJ,  BHar,  DagH,  DBE,  DME,  EÁs,  EyjÁ,  GrímG,  GE,  GÞÞ,  GAS,  GHaf,  HKF,  HildS,  IngÞ,  JGH,  JPJ,  JGnarr,  JGunn,  JPZ,  JBÓ,  KÁB,  KÞS,  KFrost,  LRM,  LE,  MRK,  NTF,  PawB,  RÞI,  RGuðb,  SGuðm,  SER,  SigurjÞ,  SHP,  SÖH,  SSB,  VilÁ,  VíðR,  ÁBH,  ÁLÞ,  ÓA,  ÞorbG,  ÞKG,  ÞGB,  ÞórdG,  ÞSv.
12 þm. (HHL,  IngD,  IIsak,  KGH,  LóaJ,  SDG,  SÁA,  SIJ,  SMás,  SVS,  ÞorgS,  ÞórP) greiddu ekki atkv.
4 þm. (AMöll,  EBB,  IngS,  NMG) fjarstaddir.