[16:24]
Virðulegi forseti. Gott fæðingarorlofskerfi er, eins og við vitum, mikilvægt jafnréttismál sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt stóran þátt í að þróa og bæta. Jafnrétti er einn af hornsteinum stefnu Sjálfstæðisflokksins enda byggir það á frelsi einstaklingsins og við teljum að með því sé lagður grunnur að góðum lífskjörum og velferð alls samfélagsins. Ég kem því upp til þess að lýsa yfir stuðningi okkar Sjálfstæðismanna við þetta mál en við hófum þessa vegferð undir lok síðasta kjörtímabils þegar við tryggðum það hér í þingsal, fyrir tilstilli okkar Sjálfstæðismanna og meiri hlutans, að hækkunin þá tæki til allra óháð fæðingardegi. Afstaða okkar er auðvitað ekki óvænt því að við Sjálfstæðismenn, m.a. hæstv. forseti hér, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, lögðum fram breytingartillögu sama efnis sem var reyndar felld af meiri hlutanum með einhverjum sparðatíningi og ótrúlegum afsökunum. En ég segi bara enn og aftur: Það er sama hvaðan gott kemur og við styðjum þetta mál.
Virðulegur forseti. Já, þetta er sjálfsagt og sanngjarnt, gott skref og það er synd að við séum ekki að nota tækifærið við þessar lagabreytingar til að leiðrétta frekari ósanngirni í fæðingarorlofskerfinu sem er t.d. sú að feður og mæður fá ekki að ráðstafa fæðingarorlofi sínu innbyrðis eins og þau kjósa. Þúsundir barnafjölskyldna verða af réttindum vegna þessa, kerfisbundið óréttlæti sem við búum við. Flestir feður taka orlof. Flestar mæður snúa fljótlega aftur á vinnumarkað. Hvenær nákvæmlega menn gera þetta er eitthvað sem ríkisvaldið þarf ekki að ákveða fyrir fólk að mati okkar í Miðflokknum. Inga Sæland, hæstv. félagsmálaráðherra, vill breyta þessu og hefur gefið skýrt út að ríkisstjórnin banni henni að gera það. Mér finnst það afar afhjúpandi að Samfylkingin, í stað þess að vera talsmaður hagsmuna barnafjölskyldna og fólksins í landinu, sé þessi flokkur sem tekur þessa skýru varðstöðu með forræðishyggju ríkisvaldsins. Það er afhjúpandi. Það er sannarlega afhjúpandi, virðulegur forseti.
Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi. Það varðar að það skipti ekki máli hvenær barn er fætt, það fari ekki eftir dagsetningunni hvort foreldrar njóti hækkunar eða ekki. Það þarf ekki að hafa mörg orð um þetta mál, það er sanngjarnt að gera þessa breytingu. Ég vil á þessum tímapunkti leyfa mér að þakka þeim hv. þingmönnum sem áður hafa lagt fram frumvarp þess efnis sem varðar þessar breytingar. En allt hefur sinn tíma og nú breytum við þessu með sanngirni að leiðarljósi.
1. gr. samþ. með 57 shlj. atkv.
Frú forseti. Við í þingflokki Framsóknar styðjum þetta mál heils hugar. Þetta er mikið framfaraskref. Við erum stolt af því að hafa tekið þátt í uppbyggingu á fæðingarorlofskerfinu árum og áratugum saman og við fögnum hverju skrefi sem er tekið til betrumbóta eins og er að gerast hér í dag. Mig langar samt sem áður líka koma því á framfæri að það hefur verið mikil umræða í okkar flokki, sérstaklega hjá unga fólkinu okkar sem er einmitt á barneignaaldri, um að þessi fæðingarorlofsréttur sé í rauninni á ábyrgð foreldra og að þeir geti skipt honum á milli sín eins og hentar hverju og einu pari. En þingflokkur Framsóknar mun vera á grænu í þessu máli og við fögnum þessu jákvæða skrefi.
Virðulegur forseti. Við erum að greiða atkvæði um mikilvægt mál, fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi. Það er mikið réttlætismál að tryggja fólki að allir hafi rétt á því að njóta sömu hámarksgreiðslna sem skilgreindar eru í lögunum en ekki eftir því hvenær barn fæðist. Þetta hefur svo sannarlega áhrif á rekstur heimila. Þetta hefur áhrif á töku foreldra á fæðingarorlofi. Ég tel að þetta skipti gríðarlega miklu máli fyrir jafnréttissjónarmið, að tryggja að báðir foreldrar nýti sér þennan mikilvæga rétt, sem er ekki sjálfsagður. Réttlætið felst auðvitað í því að hámarkið sé það sama óháð því hvenær börn fæðast. Þetta er risastórt skref fyrir okkur að stíga hér núna.
Herra forseti. Ég vil bara taka undir öll þessi góðu orð um þetta góða mál sem hér hafa verið sögð. Þetta er eitt af þeim málum sem við í velferðarnefnd vorum bara öll held ég sammála um og gekk afskaplega vel fyrir sig að fara með málið í gegn hjá okkur, að mig minnir. Það er búið að rekja ágætlega innihaldið og það sem skiptir mestu máli. Aðalatriðið er að þetta er að gerast núna í dag. Hvort upphafið að þessu var fyrir tíma þessarar ríkisstjórnar er kannski ekki aðalmálið, en það var sannarlega gott að þetta hófst einhvern tímann. Núna er þetta að verða að veruleika og það er í forsvari þessarar góðu ríkisstjórnar sem hér er við völd.
2.–5. gr. samþ. með 58 shlj. atkv.