157. löggjafarþing — 51. fundur.

Málshefjandi var .

um fundarstjórn.

fundarstjórn forseta.

[19:37]
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Hér hefur verið til umræðu kílómetragjaldið. Við fengum nú fyrr í dag enn eina sláandi ábendingu þess efnis hversu flókið kerfið mun vera. Í ljósi þess hversu flókið kerfið í kringum kílómetragjöld á rafmagnsbifreiðar er — kerfið er ekki einu sinni tilbúið hjá Skattinum. En það sem var sérstaklega skrýtið er að loksins — af því ég er nýbúin að lýsa því yfir að meiri hlutinn hlusti ekki og sjái ekki — ákvað hv. þingmaður meiri hlutans að hlusta. Við fengum hér póst frá þessum hv. þingmanni þar sem hann segir orðrétt að ábendingin sé móttekin og að viðkomandi muni krefjast þess að málið verði endurmetið, þar á meðal íþyngjandi útfærslur. Þetta kemur frá þingmanni meiri hlutans. Því bið ég forseta að hlutast til um það að hér verði fundur í efnahags- og viðskiptanefnd því að meiri hlutinn er vonandi að vakna.



[19:38]
Forseti (Ingvar Þóroddsson):

Forseti minnir hv. þingmenn á að biðja um leyfi forseta áður en hafist er handa við að lesa ritaðan texta. (NMG: Ég biðst afsökunar.) Einnig, eftir því sem forseti best veit, þá er á dagskrá fundur efnahags- og viðskiptanefndar í fyrramálið.



[19:39]
Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Hér er komin á dagskrá 3. umræða um kílómetragjaldið sem hefur legið fyrir allan tímann að sé mjög flókið í framkvæmd, fresturinn sé mjög stuttur og þetta sé mjög erfitt í framkvæmd. Og þegar hv. stjórnarþingmenn eru farnir að lýsa því yfir við hagaðila úti í bæ og gefa væntingar um að það eigi að endurskoða málið, endurskoða íþyngjandi útfærslu málsins, þegar það er orðið staðan, þá hlýtur virðuleg efnahags- og viðskiptanefnd að þurfa að koma saman áður en 3. umræða klárast. Ef stjórnarþingmenn eru farnir að lýsa því yfir að það eigi að endurskoða málið hlýtur það að gerast áður en umræðan um málið klárast, virðulegur forseti. Ég vil benda á það að þetta mál er hér enn á dagskrá dagsins, þó að það hafi verið sett smá pása þá er málið enn þá á dagskrá þannig að það hlýtur að þurfa að fara fram einhver endurskoðun áður en umræðan klárast, virðulegi forseti.



[19:40]
Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Það eru reyndar afskaplega jákvæðar fréttir ef þingmenn stjórnarmeirihlutans hafa gert sér grein fyrir þessu með því að lesa pósta sem þeir fá, m.a. þennan umrædda póst, frá atvinnurekendum sem þurfa eftir lýsingum að dæma, og mörgum lýsingum sem ég hef fengið, að sinna afskaplega flóknum útreikningum og skilum til hins opinbera til að að geta greitt þetta kílómetragjald. Þetta veldur miklum kostnaði og mikilli mannaflaþörf, svo mikilli að þessi fyrirtæki hyggjast jafnvel, og verða jafnvel, að draga saman seglin að einhverju leyti vegna kostnaðar og umfangs þessa nýja skatts. Það er auðvitað vel ef þingmenn stjórnarliðsins hafa uppgötvað þetta líka. Það er auðvitað (Forseti hringir.) lágmark, herra forseti, að umræðu um þetta mál, sem er enn í gangi hér á dagskránni, verði frestað eftir þennan fund þar sem þetta mál verður tekið upp.



[19:42]
Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er búið að boða fund í efnahags- og viðskiptanefnd strax í fyrramálið klukkan 9:10. Varðandi þetta mál sem hér um ræðir þá fengum við nokkrir þingmenn í efnahags- og viðskiptanefnd og fleiri tölvupóst frá hagaðila sem lenti í vandræðum með kerfið. Við höfum fengið fullvissu um að kerfið virki. Það var ein tæknileg villa sem þegar er búið að laga sem er m.a. vegna þess að kerfið tekur ekki gildi fyrr en 1. janúar. Þannig að það sem hagaðilinn var að lenda í í dag, það verður búið að sjá fyrir því þegar kerfið tekur gildi. Það felst í því m.a. að stórir aðilar sem þurfa að skrá bíla sína fá svokallaða safnreikninga þannig að það er búið að sjá fyrir þessu og þetta var vitað fyrir fram og við höfum fengið fullvissu um að kerfið virki. Hv. þingmaður, sem er reyndar ekki í salnum, sem fékk líka þennan tölvupóst, er líka búinn að fá fullvissu um að þetta sé allt eins og það á að vera.



[19:43]
Jón Pétur Zimsen (S):

Herra forseti. Ég vil bara koma hér upp og fagna því sem ég heyrði frá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur að hér væru stjórnarliðar að opna bæði eyru og augu, hlustuðu á hagaðila í þessu máli og vildu láta endurmeta málið og það eru auðvitað skýrar væntingar sem stórir aðilar úti í bæ hafa. Ég ræddi við aðra bílaleigu og fékk sendan áætlaðan kostnað við tíu daga um áramótin, 4 milljónir og að mig minnir 18.000 leigudaga næsta sumar sem útleggjast á 120 milljónir í ófyrirséðan kostnað vegna kílómetragjaldsins. Það að hv. stjórnarþingmaður hafi loksins að opna eyru og augu og sé tilbúinn að endurmeta stöðuna og gefa þessum hagaðilum væntingar hlýtur að kalla á það að málið verði skoðað áður en við ljúkum þessari umræðu.



[19:44]
Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Þetta eru mikil tíðindi og ber að fagna því ef augu og eyru meiri hlutans eru að opnast. En varðandi svar hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur um að það væri búið að bregðast við þessu öllu og það væri búið að boða fund í efnahags- og viðskiptanefnd strax í fyrramálið, sagði hún, eins og hér væri bara um neyðarviðbrögð að ræða, þá var búið að boða þann fund, hv. þingmaður, út af allt öðru. Það sem var verið að óska eftir núna var fundur núna. Það er mjög æskilegt undir þessum lið þegar stjórnarliðar fara að reyna að réttlæta viðbrögð sín hér, að það sé a.m.k. í einhverjum námunda við þá atburðarás sem er sönn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)



[19:45]
Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér kemur hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar og upplýsir okkur um að einn tæknifeill af tugum sem okkur hefur verið bent á, ein íþyngjandi aðgerð af tugum sem okkur hefur verið bent á hefur verið löguð, aðeins ein. Hefur öðrum hagaðilum verið svarað á sams konar hátt? Hefur öðrum hagaðilum verið gefnar svipaðar væntingar um það að áhyggjum þeirra sé svarað, er búið að lofa því að þessi íþyngjandi ákvæði sem eru þarna verði endurskoðuð? Það liggur fyrir að stjórnarþingmaður er búinn að gefa væntingar um að íþyngjandi löggjöf og flókið kerfi verði endurskoðað, krafist þess að það verði endurskoðað og yfirfarið. Það er ekki nóg að ein tæknileg villa sé leiðrétt hér. (Forseti hringir.) Það er svo margt annað undir í þessu máli og margt annað sem þessi hagaðili sem sendi þetta inn hefur áhyggjur af heldur en þessi eina tæknivilla.



[19:46]
Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Það eru áhugaverð tíðindi hér í þessum umrædda tölvupósti og áhugaverð svör hv. formanns efnahags- og viðskiptanefndar hér áðan. Það er hins vegar alveg ljóst öllum sem hafa séð og skoðað þessi umræddu tölvupóstssamskipti að þau snúa ekki að einhverri einni tæknilegri útfærslu frumvarpsins. Það er ekki verið að tala um það þegar verið er að tala um að endurmeta málið. Að endurmeta málið þýðir einfaldlega að það þarf að skoða málið frá grunni, endurmeta forsendur, endurmeta áhrifin. Það er það sem endurmat þýðir. Ef það á að gera það þá þurfum við í efnahags- og viðskiptanefnd að fá að vita það og þá þarf fjárlaganefnd væntanlega að fá að vita það. (Forseti hringir.) Það þýðir að við þurfum að breyta fjárlögunum. Við höfum nú ekki mikinn tíma til stefnu þannig að það verður að koma botn í þetta mál, virðulegur forseti, hér á síðustu mínútum þingsins, við getum ekki annað en gengið frá þessu.



[19:48]
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Ég vil nú byrja á að bregðast við orðum forseta þar sem hann tilgreinir að það sé búið að boða fund. Það var áður boðaður fundur og hann er áætlaður í 20 mínútur til að taka bandorm tvö út. Það er eitt mál á dagskrá og ég hafði óskað eftir því að þetta mál kæmist á dagskrá á morgun og hef ekki fengið nein svör við því. En auðvitað þarf það að gerast í kvöld ef við ætlum að halda áfram að ræða kílómetragjaldið. En að auki þá óska ég eftir því að málið verði kallað inn til nefndar innan umræðu. Það eru fordæmi fyrir því, það var gert á síðasta þingi, og mögulega er kominn nýr meiri hluti í efnahags- og viðskiptanefnd og þá þarf málið allt aðra umfjöllun. Ég óska formlega eftir því að málið fari til nefndar innan umræðunnar.



[19:49]
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég vil bara hvetja yður til að bregðast við því að hér er búið að rekja að það sé eitthvert baktjaldamakk í gangi. Stendur til að halda fund í atvinnuveganefnd um þetta mál og ekki bara einhvern afgreiðslufund á tíu mínútum? Stendur til að halda fund til að ræða þar sem nú er komið upp?



[19:50]
Forseti (Ingvar Þóroddsson):

Mig grunar að hv. þingmaður hafi verið að tala um efnahags- og viðskiptanefnd þegar hann sagði atvinnuveganefnd. Eins og hv. þingmenn vita þá er sá sem hér stendur 2. varaforseti Alþingis. Varðandi þær áskoranir að halda fund sérstaklega inni í umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd er ekki undir þeim komið sem hér stendur en þeirri áskorun verður svo sannarlega komið á framfæri. Og hér er einnig viðstaddur hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar.



[19:51]
Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég geri í sjálfu sér enga athugasemd við fundarstjórn forseta að öðru leyti en því að forseti getur ekkert gert athugasemdir við það að það sé talað til hans, það er enginn annar á vettvangi. Alvara málsins er sú að nú er komið upp mál þegar við erum að fara að ræða hér, eftir því sem ég best veit, fjárlögin. Þetta verður ekki skilið með öðrum hætti en svo að þetta setji tekjuhliðina í ákveðið uppnám. Ef ég skil málið rétt þá ætla menn samt að halda áfram með dagskrána og fara að tala um fjárlögin og gætu hugsanlega klárað umræðu um fjárlögin en við erum ekki búin að klára tekjuhliðina. Ég held, virðulegi forseti, að við verðum að fá úr því skorið hvernig menn ætla að halda þessu áfram. Ef við klárum umræðu um fjárlögin og ef einhverjar breytingar verða, sem mér heyrist að gætu orðið, þá gæti það orðið svolítið snúið þegar við erum búin með fjárlögin og gerum ráð fyrir ákveðnum tekjum sem á eftir að útkljá í því frumvarpi sem hér er verið að ræða um. Ég hvet því virðulegan forseta til að finna út úr þessu máli.



[19:52]
Forseti (Ingvar Þóroddsson):

Forseti áréttar að hann var ekki að gera athugasemd við að ákveðnum tilmælum væri beint til hans heldur einungis að árétta að ákvörðun um að halda fund í efnahags- og viðskiptanefnd yrði ekki tekin af þeim sem hér stendur. En sá sem hér stendur mun að sjálfsögðu koma þeim skilaboðum áleiðis sem hafa verið tjáð í umræðum hér um fundarstjórn forseta.



[19:53]
Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort ég hafi verið nógu skýr hérna áðan. Það komu athugasemdir frá einum hagaðila í dag um að kerfið væri ekki að virka og við höfum fengið fullvissu um að kerfið er að virka og innleiðing á að ganga sem skyldi. Það er alger óþarfi að vera með einhverjar áhyggjur. Við höfum fengið fullvissu um að það virkar allt eins og það á að virka. Ég sé því ekki ástæðu til að funda um eitthvað sem ekkert er, því miður, ég sé ekki ástæðu til þess. Við eigum fund í fyrramálið um bandorm tvö og önnur mál og þá getum við líka rætt þetta, standi hugur nefndarinnar til þess, af því að það eru auðvitað líka önnur mál á dagskrá og það er bara sjálfsagt að gera það. En hér erum við að tala um tæknivandamál sem kom upp sem er búið að leysa og var fyrirséð og þetta er bara innleiðingarmál og kemur í sjálfu sér löggjöfinni ekkert við.



[19:54]
Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Ég heyrði skýrt og greinilega viðbrögð forseta. En það vill svo til að sá aðili sem getur orðið við þessari ósk, hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir, var einmitt í pontunni núna. Ég gat ekki heyrt betur á því sem hún hafði fram að færa en að það stæði ekki til að verða við þessu. Mér fannst það koma alveg kristalskýrt fram. Svo er rétt að geta þess að þetta eina atriði sem olli þessum vandræðum er aðeins eitt af fjölmörgum atriðum sem þessi sami aðili hefur bent á og það er ekki búið að bregðast við þeim, svo því sé haldið til haga.



[19:54]
Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Mér skilst að hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson hafi í raun og veru í sínu svari til viðkomandi aðila verið að gefa ádrátt um að málið yrði skoðað rækilega. Í tilefni af orðum hv. formanns efnahags- og viðskiptanefndar þá var um fjölda ábendinga frá þessum aðila að ræða til hv. þingmanna í efnahags- og viðskiptanefnd, fjölda ábendinga. Ekki bara ein ábending sem hugsanlega er búið að laga heldur fjöldi ábendinga. Ég trúi því ekki að hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar ætli að vera þrándur í götu þess að þetta verði skoðað rækilega. Við höfum nægan tíma hér næstu daga.



[19:56]
Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er með miklum ólíkindum, þegar hér er verið að ræða undir 3. umræðu kílómetragjaldsins eða í tengslum við það, að þær upplýsingar komi inn í þingsal, sem mér reyndar skilst að hafi verið margoft bent á í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, að þetta kerfi sé ekki tilbúið. Hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar bendir á, sem svar við því, að kerfið verði tilbúið 1. janúar. Við erum hins vegar að tala um kerfi sem er búið að vera í gangi í tvö ár, ekki satt, og hér erum við að fá ótrúlega lýsingu á því hvernig eigandi 2.000 bíla hefur ekki getað unnið í þessu kerfi. Mér finnst ansi rýrt hjá hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar að lofa því hér að kerfið verði tilbúið 1. janúar. Mér finnst a.m.k. að menn eigi að bregðast við þegar þingmenn stjórnarmeirihlutans (Forseti hringir.) gefa ádrátt um það að þetta verði endurskoðað og þurfi að skoða. Þá hlýtur nú eitthvað að vera að bresta í þessu máli (Forseti hringir.) og hv. efnahags- og viðskiptanefnd hefði með réttu átt að koma saman í kvöld til að ræða þetta mál.



[19:57]
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég þakka jákvæð viðbrögð hæstv. forseta og einnig þakka ég forsetanum fyrir að leiðrétta mismæli mín hér áðan. En nú verð ég að hvetja hæstv. forseta til að halda hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar við efnið því að hér er ekki um að ræða eitt smávægilegt tæknilegt atriði sem hægt er að laga án þess að fara almennilega yfir málið. Hér er um að ræða megininntak þessa máls sem hefur á fjölbreyttan hátt áhrif á þann hagaðila sem hér um ræðir en líka miklu fleiri. Ég vek athygli á því að þótt Skatturinn eða aðrir kunni að telja að hægt sé að bregðast við þessu, búa sig undir þetta á næstu dögum, þá er ekki hægt að ætlast til þess að þeir sem starfa í greininni nýti þá fimm og hálfa virku daga sem eftir eru af árinu til að búa sig undir þetta. Við hljótum að ætla að sýna þeim sem standa í rekstri á Íslandi þá virðingu að gefa mönnum tækifæri til að bregðast við þegar verið er að innleiða svona stórfelldar breytingar.



[19:59]
Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég hef upplýsingar um að viðbrögð við þeim tæknilegu atriðum sem lýst er í títtnefndum tölvupósti séu til staðar og verða væntanlega kynnt nefndarmönnum og þingflokksformönnum síðar í kvöld. Þau gefa ekki tilefni til þess að að breyta þessu máli á nokkurn hátt eða að það þurfi að taka upp fjárlög eða boða til fundar í fjárlaganefnd sérstaklega út af málinu. Miðað við þær upplýsingar sem ég hef þá er lausn á þessu máli og þessum annmörkum þegar til staðar og það er verið að safna saman gögnum til að kynna fyrir þingflokksformönnum og þingflokkum.