157. löggjafarþing — 51. fundur. skilagjald, umbúðir og uppfærslur viðauka
úrvinnslugjald, 2. umræða.
nál. m. brtt., 308. mál. — Þskj. 574, stjfrv. 429.

[21:18]
Frsm. (Dagur B. Eggertsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir hönd umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002 (skilagjald, umbúðir og uppfærslur viðauka). Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um úrvinnslugjald en markmið þess er að tryggja áreiðanleika og skilvirkni álagningar úrvinnslugjalds með viðaukum við lögin, einkum viðauka XVIII. Þá er lagt til að gildistími ákvæðis til bráðabirgða V verði framlengdur til ársins 2028.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust minnisblöð frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og Úrvinnslusjóði. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Nefndin fjallaði um þær breytingar sem frumvarpið leggur til á reiknilíkani í viðauka XVIII við lögin. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu byggist það á þeirri meginreglu að innflytjandi tilgreini hverjar séu meginsöluumbúðir tiltekinnar vöru og út frá þeim áætlar líkanið þyngd og tegund bæði söluumbúða og flutningsumbúða utan um vöruna. Í greinargerðinni og minnisblaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis til nefndarinnar frá 2. desember kemur fram að fyrr á árinu hafi komið í ljós sá galli á reiknilíkaninu að tilgreini innflytjandi að meginsöluumbúðir séu engar, eins og mögulegt er í núverandi reiknilíkani, þá áætlar líkanið heldur ekki flutningsumbúðir utan um viðkomandi vöru.

Um þetta mætti hafa langt mál en til að gera langa sögu stutta þá komu fram lítils háttar ágallar á frumvarpinu þannig að nefndin leggur til tæknilegar breytingar á því. Þær upphæðir sem fram koma í 3.–5. gr. og 7. gr. frumvarpsins taka ekki mið af þeim breytingum sem urðu á fjárhæð úrvinnslugjalds, annars vegar með lögum nr. 127/2024, um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025, og hins vegar með lögum nr. 100/2023, um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2024. Með frumvarpinu eru ekki lagðar til breytingar á fjárhæð úrvinnslugjaldsins en nefndin leggur til nauðsynlegar breytingar á frumvarpinu til samræmis við gildandi lög. Nefndin áréttar að framkvæmd við álagningu úrvinnslugjalds hefur verið í samræmi við gildandi lög og tollskrá. Þá eru lagðar til minni háttar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Guðbrandur Einarsson, Sigurður Helgi Pálmason, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Halla Hrund Logadóttir, Ingibjörg Davíðsdóttur, Jens Garðar Helgason, Jónína Björk Óskarsdóttir og Ólafur Adolfsson.