157. löggjafarþing — 53. fundur.
þingfrestun.

[18:38]
forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. „Forseti Íslands gjörir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 157. löggjafarþings, frá 18. desember 2025 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 14. janúar 2026.

Gjört í Reykjavík, 18. desember 2025.

Halla Tómasdóttir.

_____________________

Kristrún Frostadóttir.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 157. löggjafarþings, er frestað.

Frú forseti. Ég vil nýta þetta tækifæri til að þakka hv. alþingismönnum og starfsfólki Alþingis fyrir gott og ánægjulegt samstarf á þessu haustþingi. Hér hafa verið áhugaverðar umræður. Það er gott að geta tekist á um mikilvæg málefni í þessum sal en það er líka gott að komast í smá jólafrí, endurheimt með fjölskyldu og ástvinum og mæta fersk og úthvíld til leiks á nýju ári. Hér inni verða eflaust nýjar áskoranir á nýju ári sem ég hlakka til að takast á við með ykkur öllum. Ég óska ykkur sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.