157. löggjafarþing — 79. fundur.

Málshefjandi var .

um fundarstjórn.

fundarstjórn forseta.

[11:08]
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Við erum stöðugt að reyna að færa umræðuna í þessum þingsal inn í raunheima. Svo mætir hæstv. ráðherra Inga Sæland og heldur því fram að læknar séu með 5–6 milljónir í laun á mánuði. Mig langar því að spyrja forseta: Er þetta eitthvað sem við höfum ekki verið upplýst um hér í þingsal? Eru laun sem ríkið er að borga til heimilislækna og lækna inni á spítölunum 5–6 milljónir? Er það staðan eða er hæstv. ráðherra bara að segja eitthvað? Hún getur valið að nota orðfæri eins og silkihúfur um lækna þessa lands. Það er hennar val. En er þetta raunveruleikinn, frú forseti?



[11:09]
Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vill af þessu tilefni beina því til hv. þingmanna að þeir hafa margar leiðir til að afla upplýsinga. Þeir geta lagt fram fyrirspurnir, skriflegar og munnlegar, og lagt fram óundirbúnar fyrirspurnir, fyrir utan allt annað sem liggur fyrir um launakjör í landinu. Þetta er ekki umræða um fundarstjórn forseta.



[11:09]
Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Þessi athugasemd mín verður svo sannarlega um fundarstjórn forseta. Það skiptir máli að við reynum með einhverjum hætti að fikra okkur að því markmiði að ráðherrar svari þeim fyrirspurnum sem fyrir þá eru lagðar í svokölluðum fyrirspurnatíma, þar sem óundirbúnar fyrirspurnir eru lagðar fram. Þetta er einn af þeim eftirlitsmekanismum sem stjórnarandstaðan hefur, það er óumdeilt samkvæmt lögum um þingsköp. Þetta hefur ágerst mjög. Ég hef hvað mesta reynslu hér í salnum af því að vera í stjórnarandstöðu og nýta liðinn sem heitir óundirbúinn fyrirspurnatími. Ástandið hefur versnað mjög á síðustu misserum og ég segi bara: Frá því um síðustu kosningar hefur ástandið versnað mjög hvað það varðar að ráðherrar fari undan í flæmingi og segi bara eitthvað, eins og gagsnrýnt var hér rétt í þessu varðandi orð hæstv. ráðherra Ingu Sæland sem kallaði hér út af fyrri athugasemd að hún hefði verið að tala um meðaltalstekjur. Vissulega hafa þingmenn skriflegar fyrirspurnir og aðrar leiðir til að kalla fram upplýsingar en þessum vitleysisgangi, „ekki svörum“ og útúrsnúningum í fyrirspurnatímum verður að linna. Ég hvet virðulegan forseta til að beita sér fyrir því.