157. löggjafarþing — 92. fundur.

Málshefjandi var .

tilkynning forseta.

[15:00]
Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Ég býð alla hv. alþingismenn svo og ríkisstjórn og starfsfólk Alþingis velkomið til starfa á ný eftir páskahlé. Fram undan er síðasta lota þessa löggjafarþings, vorþingið eins og það er nefnt í þingsköpum. Án efa munu miklar annir verða hér á vorþingi enda eru mörg mál nú þegar til meðferðar, bæði í þingsal og í fastanefndum. Í byrjun maí verður gert tveggja vikna hlé á þingfundum vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fara fram laugardaginn 16. maí. Í fyrri vikunni munu þó nefndir geta fundað og gerir starfsáætlun Alþingis ráð fyrir þremur nefndadögum í þeirri viku, þ.e. í fyrstu vinnuviku í maímánuði.

Ég vænti að lokum góðs samstarfs við þingmenn og ráðherra um þingstörfin nú á vorþingi þannig að hægt verði að standa við starfsáætlun sem við settum okkur í aðdraganda þessa þings og góð samstaða var um. Með góðu skipulagi, forgangsröðun og samvinnu ráðherra og þingmanna verður það vonandi hægt.