Spyrjandi var .
Frú forseti. Í drögum að nýrri fjármálaáætlun er ráðgert að fjárframlög til framhaldsskóla dragist saman um 7,1% á næstu fimm árum, fari úr 53,2 milljörðum í 49,4 milljarða árið 2031. Þetta er meiri niðurskurður en gert hafði verið ráð fyrir í fyrri áætlunum. Hann er einnig gerður á sama tíma og stærstu árgangar Íslandssögunnar til þessa hefja framhaldsskólanám og að baki er hrun í námsgetu og lestrarfærni ungmenna hér á landi í alþjóðlegum samanburði. Kennarar segja að líklega sé um mesta niðurskurð að ræða sem þegar vanfjármagnað framhaldsskólastig hefur séð áður, meiri en eftir bankahrunið 2008. Með leyfi, frú forseti, þá telur Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, að niðurskurðurinn muni bitna verulega á námi nemenda og til að mynda þurfi að skera niður námsbrautir og draga úr stoðþjónustu. Gangi þetta eftir verði næstu ár óbærileg fyrir starfsfólk framhaldsskólanna. Félag framhaldsskólakennara hefur skilað inn umsögn um fjármálaáætlun þar sem niðurskurðurinn er gagnrýndur harðlega. Hann er sagður grimmilegur og ganga beint gegn atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar sem var kynnt með pompi og prakt og samþykkt í síðasta mánuði og fari gegn fyrirheitum mennta- og barnamálaráðuneytisins um að fjárfesta í framtíð landsins, sem er skynsamleg ákvörðun.
Ég spyr því hæstv. mennta- og barnamálaráðherra: Er þetta að fjárfesta í framtíð landsins? Hvernig er hægt að vega að menntun og framtíðarlífsgæðum ungmenna með slíkum ofsaniðurskurði?
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Varðandi rekstur framhaldsskólanna miðað við gildandi fjármálaáætlun og þá fjármálaáætlun sem liggur núna fyrir þinginu þá er verið að auka fjármagn á milli ára frá núgildandi fjármálaáætlun, þ.e. um 1,3 milljarða fyrir 2027 og síðan um rúmlega milljarð fyrir 2028. Þessi niðurskurður varðar fyrst og fremst fjárfestingarhliðina. Það eru gríðarlega miklar fjárfestingar í gangi núna í kringum framhaldsskólana sem eru aðallega tengdar uppbyggingu fimm verknámshúsa. Það er að klárast í Breiðholti, við erum að fara af stað í Skagafirði og erum langt komin með samninga eða viljayfirlýsingar við þá skóla þar sem ákveðið var að byggja upp. Þessi niðurskurður snýr fyrst og fremst að fjárfestingarhliðinni eftir 2028 en framlögin per nemanda, sem eru rúmar tvær milljónir, verða á pari við það út fjármálaáætlun, þ.e. hvað er greitt með hverjum nemanda til hvers skóla miðað við hvernig það var 2026. Ég myndi segja að það væri mjög djúpt í árinni tekið að tala um aðför að rekstri framhaldsskóla eða niðurskurð sem er úr hófi fram.
Frú forseti. Hæstv. ráðherra svarar hér en afhjúpar í raun vanþekkingu sína á skólastarfi. Það er alveg ljóst að í grunnskólum landsins var stefnan um skóla án aðgreiningar tekin upp án þess að jarðvegurinn hefði verið nógu vel undirbúinn. Nú er ríkisstjórnin búin að innleiða svipuð lög þar sem sú stefna, skóli án aðgreiningar, er tekin upp í framhaldsskólunum. Nýleg skýrsla sem sveitarfélögin gerðu fyrir grunnskólana segir að stærsti hluti kennaranna sé kominn á þann stað að finnast staðan óbærileg. Þetta kerfi er verið að flytja í boði ríkisstjórnarinnar beint inn í framhaldsskólann. Niðurskurðurinn er 7,1%, nokkrir milljarðar, á tímanum. Hvernig er hægt að réttlæta það að vera að auka álagið í skólunum með hægri hendi og skera síðan niður með þeirri vinstri?
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurningu. Ég veit ekki hvort ég hafi verið nógu skýr en við erum að halda þeim framlögum sem eru greidd inn í framhaldsskólana per nemanda, þannig að rekstur skólanna er tryggður. Auðvitað er það svo að ef það verður kostnaðarauki vegna óvæntra tilvika þá munum við stíga inn í, eins og við gerðum í desember síðastliðnum, með auknu fjármagni í gegnum fjárauka. Staða grunnskólanna vegna skóla án aðgreiningar er auðvitað mjög misjöfn. Hún er þung í ákveðnum hverfum, léttari annars staðar og það er bara út af samsetningu skólanna, fjölda innflytjenda o.s.frv. Ég tel að við eigum að leggja áherslu á að það sé ákveðið jafnræði til náms og að við eigum þá frekar að reyna að styðja framhaldsskólana, og auðvitað grunnskólana líka, til að sinna þeim verkefnum.