157. löggjafarþing — 116. fundur.

Spyrjandi var .

siðareglur ráðherra.

[10:48]
Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Í aðdraganda mikilvægrar atkvæðagreiðslu varðandi viðræður við ESB hefur ríkisstjórninni verið tíðrætt um ógnina af upplýsingaóreiðu. Það er vel, en því er með ólíkindum hversu mikil upplýsingaóreiða stafar frá ríkisstjórninni sjálfri í þessu mikla hagsmunamáli þjóðarinnar. Eitt af þeim veigamiklu, hlutlægu atriðum sem þjóðin þarf að fá upplýsingar um, sem hefur ekkert með tilvonandi samningaviðræður að gera, eru kostir og gallar þess að taka upp evru. Það er því mikið áhyggjuefni að í tilkynningu frá Stjórnarráðinu séu niðurstöður skýrslu um kosti þess og galla orðaðar meira afgerandi en í sjálfri skýrslunni. Ég vil af því tilefni, frú forseti, drepa niður í siðareglum ríkisstjórnarinnar. Þar segir að ráðherra skuli beita sér fyrir því að upplýsingum sé miðlað af nákvæmni, heilindum og með skýrum hætti. Enn fremur segir að ráðherra skuli hafa frumkvæði að því að leiðrétta eins fljótt og auðið er rangar eða villandi upplýsingar sem og hvers kyns misskilning er varðar málefni sem heyrir undir ráðherra.

Í ljósi þess að siðareglur þessar voru undirritaðar af forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, þann 11. mars 2025, vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hvernig stenst kynning Stjórnarráðsins á niðurstöðum þessarar mikilvægu skýrslu siðareglur ríkisstjórnarinnar?



[10:51]
forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég hef heyrt þessa gagnrýni á framsetningu um niðurstöður skýrslunnar. Ég vil kannski byrja á því að segja að það er alveg rétt að það var ekki og er ekki verkefni skýrsluhöfunda að gera tæmandi samanburð á því hver kostnaður og ábati er af því að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli, enda liggur það alveg fyrir að þetta er alltaf einhvers konar hagsmunamat. Þessi skýrsla er ekki og mun aldrei, frekar en fyrri skýrslur, vera einhver stóridómur eða endanlegur úrskurður um það. Enda er hún m.a. gerð í aðdraganda þess að við erum að velta fyrir okkur hvort við eigum að fara í samningaviðræður við Evrópusambandið, ekki ganga inn í Evrópusambandið eða taka upp evru eftir 29. ágúst. Það er ekki þar með sagt að það séu engar niðurstöður í þessari skýrslu eða skýrar ályktanir sem er hægt að draga úr henni. Mér finnst það bara skipta máli í samhengi við þá spurningu sem ég er spurð hér í tengslum við siðareglur. Auðvitað snýst þetta um hvernig hlutirnir eru lagðir upp og það kann vel að vera að sumir vilji draga sterkar fram ákveðna hluti í skýrslunni en aðrir. Það breytir því ekki að það kemur skýrt fram í skýrslunni, forseti, að kostnaður við sjálfstæðan gjaldmiðil sé verulegur. Það kemur líka fram að hann kunni að vera meiri en sá ábati sem því fylgir. Þetta má sjá bæði í lokaorðum skýrslunnar þegar er verið að tala um aðlögun hagkerfisins sem fylgir því að geta verið með gengisfellingar en líka kostnaðinn af slíku. Það er eitt að geta tekist á við stök áföll en við vitum að yfir lengri tíma er líka gríðarlegur viðskiptalegur kostnaður sem fylgir því. Við sjáum t.d. þá stöðu víða í hagkerfinu þegar kemur að rekstri fyrirtækja að þau geta ekki gert plön fram í tímann. Á vinnumarkaði skortir ákveðið traust þegar kemur að gengismálum. Þetta er alveg vitað mál og því er velt upp í þessari skýrslu. Það er líka talað um að það liggi alveg fyrir að krónan magni uppsveiflu. Ég meina, ég get vitnað í svo marga þætti. Aðalatriðið í þessu er að skýrslan er vönduð, þetta er traustur grunnur fyrir mikilvæga umræðu um kosti og galla. Þetta á að vera umræða um kosti og galla. (Forseti hringir.) Síðan getur fólk auðvitað haft mismunandi skoðanir á því hversu djúpt í árinni er tekið. En ég tel að engu leyti að þetta snerti þær siðareglur sem þingmaður er hér að ræða. (Forseti hringir.) Í lok dags er þetta bara ákveðið mat á því hvort vegur þyngra.



[10:53]
Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég heyri hér að hæstv. forsætisráðherra tekur ekki undir niðurstöðu fjármálaráðuneytisins. Það er vissulega rétt að niðurstaðan er að það eru kostir og gallar við hvoru tveggja og ég tek undir það en það er bara ekki það sem fjármálaráðuneytið sagði. Ætlar hæstv. forsætisráðherra þá kannski að leiðrétta hæstv. fjármálaráðherra eins og er gerð krafa um í c-lið 6. gr. siðareglnanna? Það er gerð krafa um það. Ég heyri að forsætisráðherra er sammála því að þetta sé ekki niðurstaða skýrslunnar og það verður þá væntanlega leiðrétt. Eða á allt að fá að ganga upp í pólitískum tilgangi og pólitískri vegferð ríkisstjórnarinnar? Meira að segja siðareglurnar skipta ekki máli. Og talandi um pólitískan tilgang þá ætla ég, með leyfi forseta, að fara aðeins í 5. gr. siðareglna þar sem segir að ráðherra skuli gera skýran greinarmun á flokkspólitísku starfi, svo sem í tengslum við kosningar, sem er kannski eitthvað sem hæstv. forsætisráðherra hefði mátt hafa á bak við eyrað á bílaplani Jysk en látum það liggja á milli hluta.

Hér undir er eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar. Það segir skýrt (Forseti hringir.) í siðareglum ríkisstjórnarinnar að ráðherrar hafi þá skyldu að koma fram með réttar upplýsingar. Ef þær eru villandi, óvart eða ekki, þá ber að leiðrétta þær. (Forseti hringir.) Eru siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar? Er ekkert heilagt?



[10:55]
forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Fjármálaráðuneytið sagði að líklega væri kostnaðurinn af krónunni að jafnaði meiri en ábatinn. Þetta er rangtúlkun á þessari fréttatilkynningu. Það gefur að skilja þegar orð eins og „líklega“ og „að jafnaði“ eru notuð að þar er svigrúm fyrir fólk til að hafa sínar túlkanir á þeim niðurstöðum. Ég hef verið frekar skýr í mínu máli þegar kemur að kostnaði við íslensku krónuna. Ég veit alveg að það eru ákveðnir gallar sem fylgja því að fara inn í fastgengiskerfi. En ég veit líka að það er gríðarlegur kostnaður við núverandi kerfi og því er varpað fram í þessari skýrslu. Ég held að það færi betur á því að við eyddum tíma í að ræða efni skýrslunnar frekar en staka framsetningu þar sem að mínu mati er verið að snúa út úr og gera of mikið úr, og býsna langsótt að fara að tengja þetta við siðareglur. Við erum öll hér með getu til að taka málefnalegan þátt í þessari umræðu og lesa okkur til gagns þegar kemur að þessari skýrslu og ég vitna bara til þess að það er alls ekki útgangspunktur þessarar fréttatilkynningar að slá einhverju gjörsamlega föstu. En vissulega lyfti ég því upp að kostnaðurinn er verulegur.