157. löggjafarþing — 116. fundur.

Spyrjandi var .

fjármögnun Fljótaganga.

[11:04]
Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að það stendur yfir umræða um samgönguáætlun og hefur sú umræða farið ágætlega fram. Mig langar í þessari óundirbúnu fyrirspurn að ræða Fljótagöng við hæstv. innviðaráðherra. Það var áhugavert að heyra svör hans hér áðan við hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson, að fjárlög stjórnuðu hér landinu. Þá kemur að spurningu sem ég hef nú spurt hér nokkrum sinnum og ekki fengið svar við svo maður geti skilið það: Hvernig ætlar meiri hlutinn eða hæstv. ríkisstjórn að fjármagna Fljótagöng? Ég fæ hvergi séð að þau séu fjármögnuð, hvort sem það er inni í samgönguáætlun eða þá í fjármálaáætlun, sem er svo sem ekki komin fram enn þá en við höfum tekið umræðu um fjármálaáætlun hér á fyrri stigum. Hvar eru peningarnir í Fljótagöng? Því það liggur fyrir samkvæmt samgönguáætlun að það eigi að hefja framkvæmdir 2027 og er það fagnaðarefni. En eins og hæstv. ráðherra sagði áðan í óundirbúinni fyrirspurn við hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson þá eru það fjárlög þessa lands sem ráða för þegar kemur að framkvæmdum. Þar af leiðandi er ég nú að verða eitt stórt spurningarmerki þegar kemur að því hvernig eigi og hvernig hæstv. innviðaráðherra ætli að fjármagna Fljótagöng.



[11:07]
innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

[11:07]
Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég sem spurningamerki minnkaði nú ekki við þetta svar. Nú er nýkomið fram nefndarálit með breytingartillögu um frumvarp til laga um innviðafélag. Með leyfi forseta, segir í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar:

„Fram hefur komið að ef félagið tekur að sér Fljótagöng þurfi að gjaldfæra árlegt framlag ríkissjóðs sem nemur vöxtum og afborgunum af lánum vegna framkvæmdanna.“

Þetta stendur í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar. Þá er það þannig, ef ég skil þetta rétt, að ef innviðafélagið tekur þetta yfir þarf ríkissjóður að koma með fjármagn í dótturfélagið og það þarf þá að gjaldfæra það hjá ríkissjóði. En það er ekki neitt sem segir okkur það í fjármálaáætlun, sem verður væntanlega til umræðu á næstu dögum. Því miður, frú forseti, þá svarar þetta engan veginn spurningunni um það hvernig eigi að fjármagna Fljótagöng.



[11:09]
innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég get fullvissað hv. þingmann um það að þessi ríkisstjórn hefur skuldbundið sig og gefið loforð um að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð. Áætlunin er að hefja framkvæmdir við Fljótagöng á næsta ári. Það verður farið í útboð næsta vor eða næsta sumar og það er gert ráð fyrir að geta byrjað fljótlega eftir það. Það er það sem er undir. Ég ítreka það varðandi fjármögnunina að það er rétt að fjármögnun Fljótaganga er ekki í fjármálaáætlun og það er vegna þess að það er verið að líta til innviðafélagsins eins og ég sagði í fyrra svari mínu. (Gripið fram í.) Við erum að líta til innviðafélags hvað það varðar og þetta félag með tekjustreymi og eigið fé getur tekið lán til að fjármagna sig til þess að koma að framkvæmdum. Það er þannig sem við lítum á þetta. Ég vona að það svari spurningunni.