133. löggjafarþing — 64. fundur
 1. feb. 2007.
um fundarstjórn.

mæting í atkvæðagreiðslur.

[13:41]
Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég vildi einfaldlega vekja athygli á því að það hlýtur að heyra undir fundarstjórn forseta að reyna að sjá til þess að nægilega sé mætt í atkvæðagreiðslur. Það vill svo til að á ráðherrabekkjunum voru þrír. Ég veit ekki annað en ráðherrar eigi líka að mæta til atkvæðagreiðslu ef á þarf að halda og vil bara vekja athygli á því að það eru ekki stjórnarflokkarnir sem eru að koma málum hér í gegn, hæstv. forseti.



[13:41]
Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti getur upplýst að í atkvæðagreiðslu tóku þátt 18 þingmenn stjórnarflokka og 15 þingmenn stjórnarandstöðuflokka. Það er nokkurn veginn í hlutföllum við skiptingu í þinginu.