Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar frá Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins á þskj. 203, mál 198, um vestnorrænt samstarf um meðferð á endurvinnanlegu brotajárni.
Tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta, í samvinnu við Færeyjar og Grænland, skilgreina sameiginlega hagsmuni landanna með tilliti til meðferðar á endurvinnanlegu brotajárni og gefa Vestnorræna ráðinu skýrslu um hvernig meðferð þess er háttað í löndunum þremur.“
Tillaga þessi er lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 24. ágúst 2011 á Bifröst.
Vestnorrænu löndin einkennast af því að vera eyríki þar sem öll meðhöndlun á endurvinnanlegu brotajárni veltur á að járnið sé flutt sjóleiðis þangað sem hægt er að taka það til frekari meðhöndlunar. Til að geta varpað ljósi á möguleika þeirra sem áhuga kynnu að hafa á að kaupa og selja endurvinnanlegt brotajárn í vestnorrænu löndunum er nauðsynlegt að hafa yfirsýn yfir hvernig meðferð þess er hagað.
Skorað er á ríkisstjórnir landanna að kanna möguleika á að byggja upp sameiginlegt kerfi í kringum söfnun á endurvinnanlegu brotajárni og sérstaklega möguleikana á flutningi þess. Ríkisstjórnirnar skiptist á upplýsingum um þær áskoranir og vandamál sem upp koma hvað varðar meðferð á endurvinnanlegu brotajárni til að hægt sé að byggja upp hagkvæmt og umhverfisvænt kerfi til að safna því og endurnýta það sem hægt er.
Vegna krafna nútímasamfélagsins, um meðferð á endurvinnanlegu brotajárni og endurnýtingu þess, er þörf á að þeir sem kynnu að vilja koma inn á markaðinn hafi yfirsýn yfir hvernig löndin þrjú haga meðferð þess. Vestnorræna ráðið telur að sameiginleg skýrslugjöf ríkisstjórnanna um þetta efni gæti orðið til þess að fyrirtæki sem áhuga kynnu að hafa gætu betur en ella áttað sig á möguleikum þess að fjárfesta í endurnýtingu brotajárns í löndunum, t.d. með tilliti til hugsanlegrar stærðarhagkvæmni.
Till. gengur til síðari umr.
Till. gengur til utanrmn.