148. löggjafarþing — 15. fundur.
stofnefnahagsreikningar, fyrri umræða.
stjtill., 65. mál. — Þskj. 67.

[17:58]
fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um stofnefnahagsreikning ríkissjóðs í heild og einstaka ríkisaðila í A-hluta.

Með uppsetningu á stofnefnahagsreikningum verða umtalsverðar breytingar á framsetningu og innihaldi efnahagsreikninga fyrir ríkissjóð í heild og einstaka ríkisaðila í A-hluta. Lagt er til að breytingarnar komi til framkvæmda á næstu árum í samræmi við innleiðingaráætlun og að fyrsti ríkisreikningurinn sem uppfyllir kröfur alþjóðlegra reikningsskila fyrir opinbera aðila verði fyrir árið 2019.

Uppsetning stofnefnahagsreikninga er gerð á grundvelli breyttra reikningsskilaaðferða í samræmi við ákvæði 52. gr. laga um opinber fjármál. Þessum breytingum má í aðalatriðum skipta í þrennt, þ.e. nýir liðir á eigna- og skuldahlið, breyttar matsaðferðir og breytt sundurliðun á eigin fé.

Með þingsályktunartillögunni fylgir greinargerð sem ég ætla að leyfa mér að vísa til. En við erum hér að feta okkur áfram við að innleiða og hrinda í framkvæmd ýmsum breytingum sem fylgja nýlegum lögum um opinber fjármál. Með þeirri miklu breytingu sem hér er verið að innleiða þá getum við í framtíðinni betur lagt mat á það hver er í raun og veru afskriftarþörfin vegna hinna ýmsu fjárfestinga í ríkisfjármálunum og þá borið saman við nýfjárfestingu og áttað okkur á því hvort við séum að ganga kannski á stofninn á hverjum tíma eða hvort við erum að fjárfesta umfram afskriftaþörf.

Þetta hefur vissa tengingu við þá umræðu sem hefur verið mjög fyrirferðarmikil í íslenskri stjórnmálaumræðu á undanförnum misserum og árum kannski, nefnilega að við hefðum mögulega átt að fjárfesta meira í innviðunum, en kortlagning á virði innviðanna, stofnkostnaðarvirðið og eðlileg afskrift yfir tíma samkvæmt því sem hér er verið að leggja upp með, hefði getað gefið betri vísbendingu um það hver raunstaðan í þessu tilliti hefur verið.

Ástæðan fyrir því að við leggjum upp með að innleiða breytingarnar á nokkrum árum er sú að þetta er gríðarlega mikið verkefni sem felur m.a. í sér að menn fara nánast yfir alla innanstokksmuni í öllum ríkisstofnunum og meta virði þeirra, vegakerfi og aðrar stofninnviðafjárfestingar verða teknar með þegar allt er saman komið.

Þetta er stórt skref ásamt öðrum sem við erum með á dagskrá á þessu þingi. Þar nefni ég sérstaklega afnám þess að marka tekjur sem mun koma fram á næstunni en tengist líka breytingum sem leiða af lögum um opinber fjármál.

Ég legg til að tillögunni verði vísað til fjárlaganefndar og síðari umræðu að aflokinni þessari.



Till. gengur til síðari umr. 

Till. gengur til fjárln.