150. löggjafarþing — 60. fundur.
hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar, fyrri umræða.
þáltill. SPJ o.fl., 262. mál. — Þskj. 284.

[17:53]
Flm. (Sigurður Páll Jónsson) (M):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar. Flutningsmenn eru auk mín hv. þingmenn Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Elvar Eyvindsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Karl Gauti Hjaltason, Ólafur Ísleifsson, Þorgrímur Sigmundsson og Þorsteinn Sæmundsson.

Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að hlutast til um að gerð verði fjölþætt hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar á norðanverðu Snæfellsnesi, milli Búðardals og Stykkishólms, sem heilsársvegar. Athugunin taki til samfélagslegra og byggðarlegra áhrifa þess að efla þannig samgöngur á milli byggðarlaga á norðanverðu Snæfellsnesi, um Dali, í Reykhólasveit, um sunnanverða Vestfirði og norður á Strandir. Sérstaklega verði litið til styrkingar svæðisins sem eins atvinnu- og þjónustusvæðis, uppbyggingar ferðaþjónustu og vegaöryggis. Ráðherra leggi niðurstöður hagkvæmnisathugunarinnar fyrir Alþingi ásamt kostnaðaráætlun vegna uppbyggingarinnar í síðasta lagi 1. apríl 2020. Að sjálfsögðu er það frekar knappur tími en það má bara segja: Eins fljótt og verða vill.

Ef ég gríp niður í greinargerðinni þá kemur þar fram að þessi þingsályktunartillaga var áður lögð fram á 148. löggjafarþingi, 169. mál, af Bjarna Jónssyni. Málinu var vísað til umhverfis- og samgöngunefndar sem sendi málið til umsagnar. Málið er nú endurflutt með lítillega breyttri greinargerð.

Rannsókn sem gerð var á slysatíðni á vegum á árunum 2007–2010 undir stjórn Þórodds Bjarnasonar leiddi í ljós að Skógarstrandarvegur var einn þriggja hættulegustu vegarkafla landsins. Ekki er ástæða til að ætla að þetta hafi breyst til batnaðar þar sem fréttir af umferðaróhöppum á þessum vegi eru tíðar enda ástand hans bágborið og ljóst að hann stendur engan veginn undir þeirri umferð sem þar er né því hlutverki sínu að mynda greið tengsl milli byggðra bóla þar sem hann liggur.

Viðhald og endurbætur á þessum vegi hafa nánast engar verið á undanförnum árum og áratugum og lítill gaumur verið gefinn að mikilvægi hans fyrir greið samskipti á milli byggðarlaga og eflingu ferðaþjónustu og viðskipta innan þessa svæðis. Allur vegurinn er á láglendi meðfram sjó og enga fjallvegi yfir að fara sem teppast fyrstir vegna veðurs og snjóalaga. Það yrði því fyrirhafnarlítið að halda uppbyggðum Skógarstrandarvegi opnum allt árið um kring.

Í þingsályktun nr. 11/149, um samgönguáætlun fyrir árin 2019–2033, kemur fram að kostnaður við framkvæmdir á Skógarstrandarvegi sé 1,5 milljarðar kr. en fyrst er gert ráð fyrir fjármagni í verkefnið á öðru tímabili áætlunarinnar, þ.e. 2024–2028. Á því tímabili fari 450 millj. kr. í framkvæmdir á veginum og 650 millj. kr. á þriðja tímabili áætlunarinnar, 2029–2033. Ekki liggur fyrir hvenær áætlað er að verkinu verði lokið en ljóst er af samgönguáætlun að það verður í það minnsta ekki á næstu 15 árum. Ég vil taka það fram að síðan þetta var ritað hefur endurskoðuð samgönguáætlun komið fram þar sem enn meiri dráttur er á þessum framkvæmdum. Ég er þó ekki með það alveg á hreinu hvernig það er útfært en alla vega hefur þetta dregist enn meira. Slík bið eftir nauðsynlegum úrbótum á veginum er ótæk og mikilvægt að fjármögnun framkvæmdarinnar verði tryggð fyrr. Brýnt er að hafist verði handa sem fyrst við uppbyggingu Skógarstrandarvegar svo að hann verði ekki lengur slysagildra og fái gegnt samgönguhlutverki sínu. Með eflingu samgangna um norðanvert Snæfellsnes og innanverðan Breiðafjörð opnast nýir möguleikar til margvíslegs samstarfs og bættrar þjónustu, svo sem í heilbrigðis- og menntamálum. Eins og staðan er nú þurfa íbúar þessara byggðarlaga sem tengd verða saman með uppbyggðum heilsársvegi um Skógarströnd oftast að ferðast um langan veg til að komast á milli svæða, þótt vissulega sé hægt að komast um illfæran veginn hluta ársins.

Þessar byggðir eiga sumar hverjar í vök að verjast í atvinnu- og byggðarlegu tilliti. Þegar horft er til aukinnar ferðaþjónustu er svæðið auðugt að fjölbreyttri náttúru, sögu og menningarhefðum sem gætu staðið undir uppbyggingu ferðaþjónustu ef greiðar samgöngur væru fyrir hendi. Þessari þingsályktunartillögu er ætlað að stuðla að því að uppbyggingu þessa mikilvæga samgöngumannvirkis verði komið í kring eins fljótt og unnt er. Það gerist ekki síst með því að skoða gaumgæfilega hve mikla þýðingu slíkar samgöngubætur munu hafa og draga fram sterkari forsendur fyrir því að hraða uppbyggingu þessara vega.

Þar sem ég minntist á samgönguáætlun erum við í mínu kjördæmi flest sammála um að hraða þurfi þessum framkvæmdum. Eins koma upp í hugann fleiri vegir sem eru illa færir, ef svo má segja, eins og Vatnsnesvegur og Veiðileysuháls sem eru einhvers staðar inni í fjarskanum í samgönguáætlun og er það mjög miður þegar við erum að tala um uppbyggingu landsins og að styrkja brothættar byggðir. Það hlýtur að vera efst á dagskránni að samgöngur séu í lagi svo að hægt sé að styðja við brothættar byggðir.

Að þessu sögðu ætla ég ekki að hafa þetta lengra. Ég ber þann draum í brjósti að málið fái góðan framgang í samgöngunefnd svo að við getum stuðlað að því að uppbygging á þessu svæði eflist enn meira en hingað til með bættum samgöngum.



[18:02]
Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Mig langaði að nýta tækifærið og koma hér upp við þessa fyrri umræðu um þingsályktunartillögu um hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar, þar sem ég er einn af meðflutningsmönnunum. Skógarstrandarvegur er einn af fáum stofnvegum landsins þar sem enn er óbundið slitlag, lélegur malarvegur, svo að vægt sé til orða tekið, er þarna á, ef ég man rétt, 57 km kafla og þróunin á þessu svæði, byggðin meðfram Skógarstrandarvegi og aðliggjandi svæði, ber öll merki þess að þarna hafi hlutunum verið leyft að drabbast niður um langa hríð. Ef horft er til samskipta og flæðis milli Snæfellsness og Dala á fyrri stigum voru þau öll miklum mun meiri en verið hefur undanfarna áratugi og það helgast af því að samgöngur hafa verið jafn brogaðar og raunin er á Skógarstrandarvegi. Ef við horfum síðan í hina áttina, ef við höfum Stykkishólm sem miðpunkt, á samskiptin úti á Nesi, þar sem samgöngurnar eru forsvaranlegar og góðar, eru samskipti þar öll önnur en þau sem í dag eru milli Dala og Snæfellsness. Sérstaklega með það í huga að þarna er einn af sárafáum stofnvegum landsins sem enn er ekki uppbyggður og ekki með bundnu slitlagi er það ekki bara réttlætanlegt heldur nauðsynlegt að Alþingi reyni að ná utan um þetta mál og setja í þannig farveg innan samgönguáætlunar að árangur náist. Með smáfyrirvara held ég að búið sé að skoða töluvert vel svæðið frá Haukadal í Dölum inn að Heydals-vegamótum og þar ætti að vera mögulegt að komast tiltölulega hratt af stað með framkvæmdir ef fjárveitingar koma til. Það er að ég held meiri vinna eftir frá Heydals-vegamótum og áfram inn fyrir Álftafjörð og yfir í Helgafellssveitina. En það er verkefni sem þarf auðvitað að vinna samhliða því að menn komist af stað á hinum helmingi vegarins, ef svo má segja, þeim megin sem liggur Dalamegin. Ég held að það sé nauðsynlegt að ýta hressilega við þessu máli.

Eins og hv. þm. Sigurður Páll Jónsson kom inn á hér áðan var endurskoðuð samgönguáætlun lögð fram af hæstv. samgönguráðherra í fyrstu viku desember sem er eftir að þessi þingsályktunartillaga var lögð fram. Tölur í greinargerð taka því mið af áætlun hæstv. samgönguráðherra eins og hún var lögð fram fyrir rúmu ári, og þar blasir við að verkefni og vinna við Skógarstrandarveg er töluvert langt inn í framtíðina. Það er þannig að í þeim áætlunum, bæði 5 ára og 15 ára samgönguáætlun, sem hæstv. samgönguráðherra lagði fram í fyrstu viku desember, er staðan sú að engar fjárveitingar eru áætlaðar í Skógarstrandarveg á fyrsta tímabilinu, sem nær yfir árin 2002–2024, en síðan koma inn fjárveitingar á öðru tímabili, á árunum 2025–2029, eins og áætlunin liggur fyrir, en meginþungi er á þriðja tímabili og þar eftir. Svo að það sé sett í samhengi þá upplifa auðvitað margir að þriðja tímabil samgönguáætlunar sé svona dálítið úti í vindinum og þegar meginþungi hvað varðar fjárveitingar er settur á þriðja tímabil þá viti ráðherra hverju sinni að hann verður varla í embætti til að klára það verkefni. Ég held að við þurfum að finna leiðir, og það þarf að eiga sér stað í vinnu við samgönguáætlun, til að auka verulega í þær fjárveitingar sem verða til ráðstöfunar hvað nýframkvæmdir varðar að nokkru marki á þeim nótum sem meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar lagði til við afgreiðslu áætlunarinnar sem lögð var fram fyrir rúmu ári, og það er sú vinna sem er svo sem í gangi í nefndinni núna. Ég held að það sé ekki í boði að menn séu að horfa til þess að klára þennan vegkafla einhvern tímann í námunda við árið 2040. Það eru allt of mörg ár til þess að hægt sé að horfa til þess að forsvaranlegt sé að geyma að tengja Snæfellsnes og Dali til þess tíma. Það er ekki bara þannig að vegur skili áhrifum heldur stefnir í lögþvingaðar sameiningar sveitarfélaga ef horft er til frumvarps hæstv. samgönguráðherra í þeim efnum. Valkostirnir sem horfa við svæðunum Dalamegin og áfram yfir á Strandir í þessum efnum — það þarf að hafa þá sem fjölbreyttasta. Ég segi fyrir mig að ég vil gjarnan sjá þessa lögþvingun falla hér í meðförum þingsins, og vona að það verði niðurstaðan, á grundvelli þess frumvarps sem samgönguráðherra hefur nú lagt fram í svokallaða samráðsgátt stjórnvalda. Lagafrumvarpið sem snýr að lögþvinguninni er ekki komið til þingsins. En ég held að það að tengja Dalasvæðið við Snæfellsnesið muni ýta undir þróun ferðaþjónustunnar á báðum svæðum. Það mun auka flæði ferðamanna af Snæfellsnesinu yfir í Dali og síðan áfram yfir á sunnanverða Vestfirði eða yfir á Strandir. Og þetta er hluti af því sem við verðum að hafa í huga nú þegar það á að vera öllum ljóst að það skiptir alltaf meira og meira máli að dreifa þeim mikla fjölda ferðamanna sem hingað kemur til að skoða okkar fallega land sem mest út um fjarsvæðin. Álagið er meira og minna allt hér í tiltölulega stuttum akstursradíus frá höfuðborgarsvæðinu og yfir á Suðurlandið þannig að þarna eru óendanleg tækifæri til að leyfa ferðamönnum að njóta okkar fallega lands í okkar fallega Norðvesturkjördæmi.



Till. gengur til síðari umr. 

Till. gengur til um.- og samgn.