150. löggjafarþing — 93. fundur.
Matvælasjóður, frh. 2. umræðu.
stjfrv., 728. mál. — Þskj. 1257, nál. m. brtt. 1270, nál. 1274.

ATKVÆÐAGREIÐSLA

[18:00]

Till. í nál. 1274 um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar felld með 30:6 atkv. og sögðu

  já:  BirgÞ,  GBS,  KGH,  SDG,  SPJ,  ÞorS.
nei:  ATG,  ÁslS,  ÁsmD,  ÁsF,  BÁ,  BjG,  BHar,  BN,  GÞÞ,  HallM,  HHG,  JónG,  JÞÓ,  KJak,  KÓP,  KÞJ,  LA,  LRM,  NTF,  ÓGunn,  ÓBK,  PállM,  RBB,  SÁA,  SJS,  SÞÁ,  SSv,  VilÁ,  WÞÞ,  ÞórdG.
9 þm. (AFE,  GBr,  GuðmT,  HKF,  HVH,  JSV,  OH,  ÞorbG,  ÞKG) greiddu ekki atkv.
18 þm. (AIJ,  AKÁ,  ÁÓÁ,  BergÓ,  BjarnB,  BLG,  GIK,  HSK,  HarB,  IngS,  LínS,  LE,  ÓÍ,  SIJ,  SilG,  SMc,  ÞórP,  ÞSÆ) fjarstaddir.
1 þm. gerði svofellda grein fyrir atkvæði sínu:

[17:59]
Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Við Píratar greiðum atkvæði gegn því að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar. Málið hefur verið vel unnið. Það hefur verið bætt gríðarlega mikið í meðförum atvinnuveganefndar þar sem valdi er dreift og aðkoma að málinu er faglegri, eins og ég fór yfir í ræðu við 2. umr. Nú hefur vilji atvinnuveganefndar þingsins komið skýrt fram, að þessir peningar eiga að skila sér hratt og vel og eiga að gera það á mjög svipuðum hraða og ef þeir hefðu verið áfram í þeim sjóðum sem þeir eru í, Framleiðnisjóði landbúnaðarins og AVS. Í því tilliti að Framleiðnisjóðurinn mun úthluta áfram í október munum við fylgja því eftir að ráðuneytið fylgi vilja löggjafans hvað það varðar að þetta skili sér hratt og vel, jafn hratt og þótt þessi breyting hefði ekki orðið í efnahagslífinu. Það að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar mun bara tefja þessi mál og að þessir peningar komist til vinnu þar sem þeirra er þörf á þessum tíma.



Brtt. í nál. 1270,1–2 samþ. með 39 shlj. atkv. og sögðu

  já:  AFE,  ATG,  ÁslS,  ÁsmD,  ÁsF,  BÁ,  BjG,  BHar,  BN,  GBr,  GÞÞ,  GuðmT,  HallM,  HKF,  HVH,  HHG,  JónG,  JÞÓ,  JSV,  KJak,  KÓP,  KÞJ,  LA,  LRM,  NTF,  OH,  ÓGunn,  ÓBK,  PállM,  RBB,  SÁA,  SJS,  SÞÁ,  SSv,  VilÁ,  WÞÞ,  ÞorbG,  ÞKG,  ÞórdG.
6 þm. (BirgÞ,  GBS,  KGH,  SDG,  SPJ,  ÞorS) greiddu ekki atkv.
18 þm. (AIJ,  AKÁ,  ÁÓÁ,  BergÓ,  BjarnB,  BLG,  GIK,  HSK,  HarB,  IngS,  LínS,  LE,  ÓÍ,  SIJ,  SilG,  SMc,  ÞórP,  ÞSÆ) fjarstaddir.
3 þm. gerðu svofellda grein fyrir atkvæði sínu:

[18:01]
Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Í þessari breytingartillögu er m.a. lagt til að skylt verði að setja á fót fagráð með sjö einstaklingum til hliðar við stjórn Matvælasjóðs. Meiri hlutinn í atvinnuveganefnd leggur til að við skipun þessa fagráðs verði horft til háskólasamfélagsins og sérþekkingar í atvinnulífinu, frumkvöðla- og nýsköpunargeirans. Ég tel mjög mikilvægt að slíkt fagráð sé til staðar eins og er í öðrum sjóðum, eins og Tækniþróunarsjóði, og verði stjórninni til halds og trausts við að fara yfir umsóknir um styrki sem koma inn í þennan mikilvæga sjóð.



[18:02]
Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Breytingartillögur meiri hluta atvinnuveganefndar eru mjög góðar, margar hverjar, og ég fór yfir þær í ræðu við 2. umr. Mögulegt geðþóttavald er fært frá ráðherra. Eins og frumvarpið var lagt fram hafði hann vald til að ákveða hverju skyldi úthlutað eftir að stjórnin var búin að taka ákvörðun um það. Það er fjarlægt úr frumvarpinu og í staðinn kemur fagráð miklu fleiri aðila og sjónarmiða, sjö manna fagráð sem mun síðan koma með tillögur til þessarar fjögurra manna stjórnar. Þetta er valddreifing og faglegri vinnubrögð og allar breytingartillögurnar sem hafa verið gerðar hafa bætt málið mjög mikið og Píratar styðja það.



[18:02]
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Í desember var ég eindregið fylgjandi því að af þessu máli yrði, sameiningu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og AVS-sjóðs sem er skammstöfun fyrir aukið virði sjávarfangs. Þá var ekki vilji hjá stjórnarflokkunum til að afgreiða þetta, þeir töldu það ekki tímabært o.s.frv. Núna er þetta mál komið inn aftur undir hatti Covid. Það er allt í lagi, þetta er ekkert Covid-mál en mikilvægt mál engu að síður. Þetta er tækifæri fyrir okkur til að halda enn betur utan um matvælaframleiðsluna okkar, styrkja enn betur nýsköpun í landbúnaði, nýsköpun í sjávarútvegi og taka fleiri þætti inn eins og umhverfisþætti. Ég sé gríðarleg tækifæri í því að stofna svona sjóð og fara inn á nýjar brautir um leið og ég dreg fram að með því að greiða atkvæði með þessu máli er ekki verið að lýsa yfir stuðningi við búvörusamninginn eins og kom hér fram fyrr í dag. Miklu heldur er þetta lýsandi mál um það að við þurfum að endurskoða landbúnaðarstefnuna okkar með því að styrkja bændur enn frekar en það verður ekki gert með því að taka frekar fyrir milliliði og gera kerfið þunglamalegra. (Forseti hringir.) Ég lít á þetta mál sem fyrsta skref í ákveðinni uppstokkun til framtíðar fyrir landbúnaðinn.



 1.–3. gr. og nýtt ákv. til brb., svo breyttar, samþ. með 40 shlj. atkv. og sögðu

  já:  AFE,  ATG,  ÁslS,  ÁsmD,  ÁsF,  BÁ,  BjG,  BHar,  BN,  GBr,  GÞÞ,  GuðmT,  HallM,  HKF,  HVH,  HHG,  JónG,  JÞÓ,  JSV,  KJak,  KÓP,  KÞJ,  LA,  LRM,  NTF,  OH,  ÓGunn,  ÓBK,  PállM,  RBB,  SÁA,  SJS,  SÞÁ,  SSv,  VilÁ,  WÞÞ,  ÞorbG,  ÞKG,  ÞórdG,  ÞSÆ.
5 þm. (BirgÞ,  GBS,  KGH,  SPJ,  ÞorS) greiddu ekki atkv.
18 þm. (AIJ,  AKÁ,  ÁÓÁ,  BergÓ,  BjarnB,  BLG,  GIK,  HSK,  HarB,  IngS,  LínS,  LE,  ÓÍ,  SDG,  SIJ,  SilG,  SMc,  ÞórP) fjarstaddir.
5 þm. gerðu svofellda grein fyrir atkvæði sínu:

[18:05]
Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Hér er verið að samþykkja lög um stofnun Matvælasjóðs sem við Vinstri græn höfum lengi lagt mikla áherslu á og hefur verið í undirbúningi í þó nokkuð langan tíma í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Ég tel þetta vera mikilvægt skref til að þróa innlenda matvælaframleiðslu sem nú er þörf á sem aldrei fyrr, að við sem þjóð getum haft sem mesta innlenda matvælaframleiðslu eins og sýnir sig við þessar aðstæður. Þessi sjóður tekur við af gamalreyndum sjóði, Framleiðnisjóði landbúnaðarins, og nýrri sjóði sem snýr að sjávarútveginum, AVS. Við horfum til fjölbreyttrar matvælaframleiðslu í öllum greinum, grænmeti og öðru, og á þessum tímum er mjög gott að fá innspýtingu í þetta mikilvæga mál, að efla matvælaframleiðslu á Íslandi og efla störf úti um allt land. Ekki veitir af.



[18:06]
Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Við greiðum hér atkvæði um Matvælasjóð og við Framsóknarmenn fögnum þessu framtaki. Með öflugri sjóði og auknum fjármunum erum við að styrkja og efla nýsköpun og þróun matvælaframleiðslu í bæði landbúnaði og sjávarútvegi. Fulltrúi okkar í hv. atvinnuveganefnd, hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir, ritar undir álit meiri hluta og leggur áherslu á mikilvægi fagráðs og að um leið og samvinna og samlegð skapast verði jafnræðis gætt á milli ólíkra matvælaframleiðslugreina um allt land.



[18:07]
Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Ég hef alveg málefnalegar ástæður fyrir því að vilja geta greitt atkvæði gegn nokkrum atriðum, verið á gula takkanum í sumum en í heildina á þeim græna þar sem mér sýnist málið í heildina verða mjög farsælt, en þar sem atkvæðagreiðslunni er svona háttað eltist ég ekki við það og greiði bara atkvæði með málinu heilt yfir af því að ég tel það farsælt. Í ræðu við 2. umr. gerði ég líka grein fyrir þeim atriðum sem ég hefði viljað greiða atkvæði gegn eða sitja hjá við.



[18:08]
Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Að sjálfsögðu styð ég þetta mál, studdi það líka þegar umræðan um sameiningu þessara sjóða varð fyrst, vegna þess að ég tel svo mikilvægt þegar við erum að ræða um stuðningsumhverfi nýsköpunar að það sé eins einfalt og hægt er og að mikil þekking byggist upp í stuðningsumhverfinu. Ég held þess vegna að gríðarleg tækifæri séu fólgin í þessari sameiningu. Ég efast ekki um að þessir tveir sjóðir hafi hingað til styrkt mjög góð og þörf verkefni en ég held að með sameiningunni sé tækifæri til að gera enn betur.

Auk þess legg ég áherslu á að þarna liggja tækifærin okkar núna. Í því umhverfi sem við erum í núna munu nýsköpun, rannsóknir og þróun koma okkur út úr þessari kreppu. Þangað eigum við að horfa og tækifæri fyrir Ísland sem matvælaland eru mikil. Þetta er vonandi bara eitt skref í átt að því að efla þá þróun enn frekar.



[18:09]
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Þegar við vorum þingmenn Reykjaneskjördæmis var það almennilegt landbúnaðarkjördæmi. Engu að síður er öflugur landbúnaður innan Kjósarinnar sem dregur fram mikilvægi þess að hlúa að nýsköpun. Eins og ég sagði áðan styð ég þetta mál eins og ég gerði í desember. Þá ákváðu ríkisstjórnarflokkarnir að stoppa það að sameina sjóðina og við skulum tala hreint út, það var m.a. út af þrýstingi frá hagsmunaaðilum sem töldu sameininguna ekki tímabæra. Ég el þá von í brjósti að þetta sé fyrsta skrefið í því að við hugum markvisst að aukinni nýsköpun, auknum styrkjum til landbúnaðar og sjávarútvegs og annarra matvælagreina fyrir landið til framtíðar þannig að við getum virkilega farið að byggja upp nýsköpun, rannsóknir og þróun á þessu sviði. Þar getum við verið í forystu, við eigum allan efnivið til þess, hráefnið, þannig að við eigum að geta búið til þannig umhverfi að við getum haldið vel utan um þær mikilvægu atvinnugreinar sem falla undir matvælaiðnaðinn (Forseti hringir.) þannig að sóknin verði m.a. þar til næstu ára.



Brtt. 1257 samþ. án atkvgr.

Frumvarpið gengur til 3. umr.