Virðulegi forseti. Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum, hvorki fólki sem býr á landsbyggðinni né hér á suðvesturhorninu, hversu erfiður veturinn hefur reynst okkur, ekki síst fyrir þær þúsundir manna sem fara Hellisheiðina, þar á meðal mig og fleiri. Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar hefur viðrað áhyggjur sínar af tíðum og löngum lokunum vegarins og bent á afleiðingar þeirra fyrir sveitarfélagið, íbúa þess og fyrirtæki. Í febrúarmánuði var t.d. lokað lengur en allan veturinn þar á undan. Þess vegna er mikilvægt að fá þessa umræðu hingað inn í þingsal og við höfum aðeins rætt þetta áður, ég og hæstv. ráðherra, en ég vil aðeins fá betri svör þannig að við getum fengið að vita meira um framhaldið.
Við þurfum að vera vel undirbúin til að geta tryggt öryggi og gott aðgengi á veginum, þessum mikilvæga vegi, næst þegar veturinn verður eins erfiður og nú. Þá þurfa að liggja fyrir skýrar áætlanir og raunhæfar aðgerðir sem taka bæði mið af veðri og mikilvægi vegarins. Oftar en ekki hefur vantað fjárveitingar til að bregðast við miklum snjóþunga og samgönguerfiðleikum á veginum. Það kemur t.d. fram ef við rifjum upp gamlar fréttir af lokunum Hellisheiðar.
Vissulega og blessunarlega hefur margt breyst í gegnum tíðina, tækjakosturinn er orðinn öflugri og vegurinn er gerður stærri og aðgengilegri og betri með vegriðum. En dugar það til? Þarf kannski að gera meira en áður í ljósi umferðarþungans á veginum sem mun bara aukast með tímanum? Frá því að þessar framkvæmdir voru gerðar á sínum tíma fyrir einhverjum árum síðan hefur orðið gjörbreyting í fólksflutningum á veginum og ekki síst ef við horfum á fjölgun fólks austan heiðar og eflingu fyrirtækja.
Áhrif þessara lokana eru víðtækari en áður með auknum fólksfjölda og aukinni starfsemi ferðaþjónustu. Erum við í stakk búin til að bregðast við auknum ferðamannastraumi og auknum umsvifum á svæðinu? Er ríkisvaldið að halda í við þessa ánægjulega fjölgun íbúa og eflingu fyrirtækja fyrir austan fjall? Þess vegna má velta fyrir sér hvort nóg sé að gert til að bregðast við og tryggja aðgengi, gott og betra, á veginum, ekki síst þegar þetta verður viðvarandi vandamál í ljósi vaxandi veðuröfga. Veturinn núna hefur verið einstaklega þungur en veðurfræðingar spá jafnvel enn meiri snjóavetrum en verkferlunum sjálfum er samt ekki breytt. Það er ekki meiri þjónusta í boði, bara lengri lokanir.
Ég spyr því að lokum hvort hæstv. ráðherra telji þörf á breyttum verkferlum til að bregðast við ástandinu og breyttum samgönguvenjum með viðeigandi hætti, t.d. hvort aukið fjármagn þurfi til að sinna betur verkefnum, hvort þörf sé á sértækum aðgerðum, svo sem uppbyggingu mannvirkja með göngum eða vegskálum á svæðinu eða breikkun vegarkafla eins og kallað hefur verið eftir. Mín spurning er sú hvort hæstv. ráðherra sjái fram á að gerðar verði einhverjar breytingar sem verði alla vega til þess að ekki verði þessar löngu lokanir. Við vitum af veðrinu, það er ekki hægt að skýla sér á bak við það eingöngu. Ýmislegt er hægt að gera. Er ráðherra reiðubúinn í þá vegferð?
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir fyrirspurnina. Það er rétt eins og hv. þingmaður nefndi að við tókum smáumræðu um þetta hér fyrr í vetur. Það er þannig að þegar maður fer að klóra sér í kollinum og spyrja elstu menn þá er ekkert mjög langt síðan, en þó einhverjir áratugir, að þessi sama Hellisheiði gat verið lokuð í margar vikur. Ég var að ræða við einn sem hefur keyrt til Reykjavíkur í 40 ár, búandi á Selfossi, og þetta var erfiður vetur, það var, held ég, lokað í sex vikur. Þegar það var opnað var snjórinn sjö metra hátt stál. Það geta vissulega komið miklir og þungir snjóavetur. Þetta þekkja menn auðvitað annars staðar á landinu, við hérna sunnan lands erum ekki eins vön því. En vegna þess að við höfum rætt þetta áður þá var gott tækifæri að fá möguleika á að fá bestu upplýsingar og það er mat mitt, sem er m.a. byggt á upplýsingum frá Vegagerðinni, að það sem af er þessu ári hafi tekist eins vel og hægt er að ætlast til að halda Hellisheiðinni opinni. Vegurinn um Hellisheiði er mjög fjölfarinn eins og hv. þingmaður kom inn á, vegur sem er í þjónustuflokki eitt og hvað þýðir það? Jú, það er reynt að halda honum opnum allan sólarhringinn alla daga vikunnar. Þetta ár hefur verið óvenju snjóþungt eða kannski fyrst og fremst óvenju illviðrasamt það sem af er og þær aðstæður hafa því skapast nokkuð oft að ekki hefur verið möguleiki á að hafa veginn yfir Hellisheiði opinn og það hefur þurft að loka honum tímabundið alls 19 sinnum frá upphafi árs og stundum lengur heldur en við þekktum hérna fyrir nokkrum árum þegar lægðirnar gengur hraðar yfir og svo kom logn og hægt var að moka. Nú hafa veður staðið yfir í meira en sólarhring, jafnvel á annan sólarhring.
Ákvörðun um lokun á vegi er tekin að vel athuguðu máli í samráði við sérfræðinga Vegagerðarinnar, veðurfræðinga sem og viðbragðsaðila og þegar aðstæður kalla á er lokun vegarins nauðsynleg til að tryggja öryggi vegfarenda. Það er reynt hins vegar að halda slíkum lokunum í lágmarki og við munum held ég öll eftir því þegar fjallað var um að menn hefðu lokað of seint og um 70 bílar sátu fastir í röð. Hver var ástæðan? Það var talsvert vont veður og fyrsti bíllinn festist, svo bara stoppuðu þeir allir. Fyrir vikið tók miklu lengri tíma að opna.
Varðandi önnur úrræði er rétt að geta þess að í jarðgangaáætlun frá árinu 2000 er fjallað um möguleg 8,4 km jarðgöng undir Hellisheiði með gangamunna við Kolviðarhól og undir Kömbum. Þar kemur jafnframt fram að jarðfræðilegar aðstæður séu ekki hagstæðar með tilliti til jarðskjálftavirkni og jarðhita og ekki ljóst hvaða tæknilegu úrlausnarefni þyrfti að eiga við og vegna mikillar umferðar er ljóst að göngin þyrftu að vera tvöföld með neyðargöngum á milli. Í nýrri yfirlitsáætlun Vegagerðarinnar frá 2021 um 18 jarðgangakosti sem eru til athugunar er ekki gert ráð fyrir frekari athugunum vegna jarðganga undir Hellisheiði að sinni.
Ég er sammála hv. þingmanni. Við þurfum að gera allt sem við mögulega getum til að tryggja að þessi mikilvægi vegur sé eins mikið opinn og hægt er. En stundum verðum við að sætta okkur við að við búum á Íslandi og við ráðum ekki við náttúruöflin.
Forseti. Höfuðborgarsvæðið stækkar óðfluga, nær út á Reykjanesskaga, upp í Borgarfjörð og yfir í Árnessýslu. Ungt fólk flýr hátt íbúðaverð í Reykjavík á sama tíma og það sækir í rólegra umhverfi. Það er því nauðsynlegt að fara í endurskoðun á samgöngum á þessu nýja starfssvæði höfuðborgarinnar og finna leiðir til að tryggja aðgengi, jafnvel þegar móðir náttúra minnir okkur á hversu norðarlega við búum, í því sveiflukennda veðurfari sem við nú upplifum. Á sama tíma þarf að hugsa upp leiðir til að skapa fjarvinnuaðstöðu fyrir starfsfólk þá daga sem móðir náttúra ákveður að loka öllu og hleypa engum hingað á Stór-Hafnarfjarðarsvæðið.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir virkilega áhugaverða fyrirspurn. Ég játa að ég hef persónulega aldrei heyrt þá hugmynd að borga göng í gegnum Hellisheiði. Það vakti athygli mína sem gerðist í vetur, nú hefur hæstv. ráðherra nefnt að heiðinni hafi verið lokað 19 sinnum það sem af er ári og ekki er mikið liðið af árinu þannig að það er ansi sláandi. Það var ekki bara Hellisheiðin sem var gjarnan lokuð heldur kom fyrir að loka þurfti ýmsum hjáleiðum vegna veðurs og færðar. Nú held ég að vegna loftslagsbreytinga og annars þá getum við gert ráð fyrir að þetta sé ekki að fara að breytast og því er augljóslega tímabært að hugsa um framtíðarlausnir til að halda þessari mikilvægu umferðarleið opinni. Mig langaði kannski að freista þess að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðherra hvort farið hefur fram einhver úttekt á því (Forseti hringir.) hver hagkvæmnin væri af því að fara í þessa framkvæmd. (Forseti hringir.) Ég ímynda mér að þetta sé kannski með stærri gangaframkvæmdum sem ég veit um og ég er mjög forvitin um þetta mál.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég verð að segja að þetta var kannski ekki mikil viðbót og það kemur mér ekki á óvart að Vegagerðin sé bara nokkuð ánægð með frammistöðu sína í vetur hvað þetta varðar. Öðruvísi mér áður brá ef það hefði eitthvað breyst. Ég er ekki að segja að hún hafi staðið sig illa, síður en svo. Ég held að álagið á Vegagerðinni sé mjög mikið og ekki síst á þeim sem eru á vegheflunum og snjóýtunum daginn út og daginn inn. Það er meira en að segja það að fara yfir þessa erfiðu heiði, af því að hún er erfið. Ég fer þarna nokkrum sinnum í viku og heiðin er mjög erfið, það skal ekki dregið úr því öllu.
Hitt er annað að mér finnst erfitt að heyra svarið: Ja, við búum á Íslandi, við verðum einfaldlega að sætta okkur við það þegar búið er að loka heiðinni 19 sinnum frá áramótum. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Er ekki tímabært til að hugsa hlutina svolítið upp á nýtt þegar aðstæðurnar eru þessar? Það er verið að spá meiri veðuröfgum. Þá verðum við líka að vera tilbúin með plan B. Ef plan B er ekki jarðgöngin, og allt í fína, ég bara kaupi það ef það er ekki skynsamleg leið samkvæmt okkar færasta vísindafólki, þá hljótum við að spyrja: Hvað annað getum við gert þannig að við lendum ekki á næsta ári í 30 lokunum á nokkrum vikum? Hvað annað er hægt að gera? Er hægt að breikka veginn? Er hægt að koma og setja vegskála á erfiðustu kaflana? Þetta er leið sem er mjög fjölfarin, er í þjónustuflokki eitt og ætti eiginlega að vera í stjörnuþjónustuflokki ef það væri einhver slíkur þjónustuflokkur til. Þungi á þessum vegi mun bara aukast og þá er ekki hægt að segja við fólkið okkar sem býr í Ölfusinu, hinu heimasveitarfélagi mínu, eða Hveragerði eða þar fyrir austan: Heyrðu, veðrið er bara svo slæmt að þið verðið að sætta ykkur við það. (Forseti hringir.) Þetta er þróunin og þá verðum við að reyna að finna allar leiðir til að halda þessum mikilvægu (Forseti hringir.) vegum, sem eru þessi tengiliður við okkur hér á suðvesturhorninu, (Forseti hringir.) opnum sem mest og lengst. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til dáða því ég veit(Forseti hringir.) að hann hefur metnað í þessu máli og ég veit að hann getur það sem hann langar til að gera.
Virðulegur forseti. Þökk fyrir fína umræðu hér í dag. Það er rétt að höfuðborgarsvæðið stækkar og þeim fjölgar sem velja búsetu aðeins fjær en vinna kannski hér, m.a. vegna þess að húsnæðisverð er mjög hátt eins og hv. þingmaður nefndi. Hann var einnig að velta fyrir sér að það þyrfti þá að vera með fjarvinnslustöðvar í lagi þá daga sem menn kæmust ekki. Það er akkúrat það sem við erum að gera, ekki bara þá daga sem er vont veður eða ófært heldur í raun og veru að skapa þennan valkost. Við erum einmitt að reyna að koma af stað tilraunaverkefni á Selfossi þessar vikurnar. Við höfum verið að reyna að horfa til þess að við gætum gert það í næsta nágrenni við höfuðborgarsvæðið þar sem stórir staðir gætu orðið svona vinnustaðir.
Mér er ekki kunnugt um kostnaðaráætlanir sem hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir spurði um varðandi jarðgöngin. Þeim var hreinlega ýtt til hliðar vegna þess að þau voru ekki talin fýsileg vegna jarðskjálftavirkni og annarra þátta. Ég þakka bara fyrir hvatninguna frá hv. málshefjanda, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Ef mikill stuðningur er við að fá verulega fjármuni í að bæta samgöngur í þessum sal þá tek ég glaður þátt í því og reyni að koma þeim fyrir á góðan hátt. En ég hef líka verið að reyna að vera raunsær vegna þess að allt landið er undir og víða staðir sem hafa engan veginn þær samgöngubætur sem við þekkjum hér. Stundum finnst mér að við séum farin að ætlast til ansi mikils á meðan við erum ekki búin að ná grunnþjónustunni á betri stað, samanber það sem við vorum að ræða áðan um skoðun á bílum.