153. löggjafarþing — 26. fundur.
þjónusta við þolendur ofbeldis.
fsp. HHH, 267. mál. — Þskj. 268.

[17:53]
Fyrirspyrjandi (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra fyrir að koma hingað og svara fyrirspurn minni um þjónustu við þolendur ofbeldis. Það er mikilvægt að við sem samfélag stöndum vel að þjónustu við þolendur ofbeldis og þolendur þurfa og eiga að geta fengið alla þá aðstoð sem þeir þurfa til að koma undir sig fótunum eftir það áfall sem fylgir því að verða fyrir heimilis- eða kynferðisofbeldi.

Því langar mig að byrja á því að spyrja hæstv. ráðherra hver framtíðarsýn hans sé um þjónustu við þolendur ofbeldis og stuðning við þar tengd félagasamtök. Í því samhengi hef ég einnig áhuga á að vita hvort ráðherra hafi í huga að auka stuðning við þolendur ofbeldis og hvort ráðherra telji tilefni til að sveitarfélögin stígi þar inn sömuleiðis.

Við eigum í dag góð úrræði en þolendamiðstöðvarnar hafa nú þegar sýnt mikilvægi sitt í íslensku samfélagi og reynst þolendum vel. Hjá þolendamiðstöðvum hafa þolendur fengið leiðbeiningar og styrk til að takast á við þau erfiðu verkefni sem fram undan eru eftir að hafa orðið fyrir kynferðis- eða heimilisofbeldi. Þar má nefna þjónustumiðstöðvar eins og Bjarkarhlíð í Reykjavík, Bjarmahlíð á Akureyri og Sigurhæðir á Selfossi, en Sigurhæðir hafa stigið enn stærra skref í þá átt að bjóða upp á félagslega og sálræna meðferð sem hefur reynst einstaklega vel og er félagsþjónustan víða á Suðurlandi farin að senda fólk beint til Sigurhæða því þar er styttri bið en í heilbrigðiskerfinu. Þetta er þolendum að kostnaðarlausu og er mikilvægt að svo verði áfram. En svo þær geti starfað er mikilvægt að tryggja þeim góðan rekstrargrundvöll og því spyr ég: Hefur ráðherra í hyggju að gera langtímasamninga við þær þolendamiðstöðvar sem sinna þessari mikilvægu þjónustu?

Það er því miður staðreynd að börn á Íslandi verða fyrir ofbeldi og ofbeldi markar börn til framtíðar. Þá hefur heimilisofbeldi einnig veruleg áhrif á börn en sagt er í fræðum að líkja megi aðstæðum barna sem búa við heimilisofbeldi við aðstæður þeirra barna sem búa við stríð. Ég held að allir hér inni séu sammála um að veita börnum sem besta þjónustu og í því samhengi vil ég spyrja: Hvað telur ráðherra að við þurfum að gera til að bæta þjónustu við börn sem búa við eða hafa búið við heimilisofbeldi?



[17:56]
félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa fyrirspurn og fagna því að við séum að taka þessi mál til umræðu hér í þingsal.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur stutt við þolendur ofbeldis með fjárframlögum til félagasamtaka sem veita þjónustu við þolendur ofbeldis. Ráðuneytið hefur líka verið að fylgja eftir aðgerðum í þingsályktun um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess, sem miða að því að veita stuðning til þolenda ofbeldis. Það er hins vegar orðið tímabært að mótuð verði stefna um heildstæða og samræmda þjónustu til þolenda ofbeldis um land allt og þá hvaða aðilar skuli hafa aðkomu að þeirri þjónustu. Við erum um þessar mundir einmitt að taka skref í þessa átt, einkum með tilliti til skuldbindinga okkar gagnvart Istanbúl-samningnum, samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi, en eitt af meginmarkmiðum samningsins er að stjórnvöld setji sér heildarramma, stefnu og ráðstafanir til að vernda og aðstoða alla þolendur ofbeldis og heimilisofbeldis með áherslu á samstarf þeirra aðila sem koma að málaflokknum.

Í dag höfum við hvorki lög né reglugerðir til að tryggja vernd og stuðning við þolendur ofbeldis og ekki heldur úrræði fyrir gerendur til að koma í veg fyrir ofbeldi sem byggjast á lögum og eru því í samræmi við samninginn. Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga er markmiðið að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar. Ofbeldi ógnar fjárhagslegu og félagslegu öryggi þeirra sem fyrir því verða og þrátt fyrir það er ekki fjallað sérstaklega um skyldur sveitarfélaga í lögunum til að veita þolendum nauðsynlega þjónustu vegna ofbeldis, ólíkt því sem finna má í nágrannalöndum okkar. Ég mun á næstu dögum skipa starfshóp sem verður falið það hlutverk að taka til skoðunar hvernig hátta megi laga- og reglugerðaumhverfi þjónustu við þolendur ofbeldis. Starfshópurinn mun skila tillögum í vor sem unnar verða að höfðu víðtæku samráði við aðila sem starfa innan þessa málaflokks. Í framhaldi af þessari vinnu vænti ég þess að hægt verði að móta skýra framtíðarsýn þegar kemur að þessum málaflokki sem tryggir þolendum ofbeldis vernd, stuðning og öryggi, þar með talið mögulega lögbundna aðkomu sveitarfélaga.

Varðandi þolendamiðstöðvarnar erum við með þrjár slíkar hér á landi sem starfa eftir, með leyfi forseta, „Family Justice Center“-módelinu þar sem markmiðið er að þolendum ofbeldis sé veitt öll sú þjónusta sem á þarf að halda á einum stað. Þetta er Bjarkarhlíð á höfuðborgarsvæðinu, Bjarmahlíð á Norðurlandi, Sigurhæðir á Suðurlandi og stjórnvöld eru helstu fjárhagslegu bakhjarlar þessara þolendamiðstöðva. Það er þegar komin reynsla á starfsemi miðstöðvanna og þykir þess vegna tímabært að móta stefnu um aðkomu stjórnvalda, lögregluembætta, sveitarfélaga og annarra að áðurnefndum þolendamiðstöðvum í þeim tilgangi að efla þær og styrkja. Í samvinnu dómsmálaráðuneytis, félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis erum við að fara að vinna greiningu á núverandi stöðu miðstöðvanna með tillögum um framtíðarfyrirkomulag varðandi aðkomu ráðuneyta, sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka að rekstri þeirra út frá fyrrgreindri hugmyndafræði. Markmiðin með þessari greiningu eru einkum að skýra ábyrgð ráðuneyta, lögreglunnar og sveitarfélaga, sem bera þá ábyrgð á félagsþjónustunni, og þeirra félagasamtaka sem eiga aðild að þolendamiðstöðvum. Markmiðið með greiningunni er líka að greina styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri til frekari þróunar þolendamiðstöðvanna, svo sem aukið þjónustuframboð, víðtækara samstarf, mögulega aðkomu fleiri aðila að starfseminni og þar fram eftir götunum. Í þriðja lagi er markmið greiningarinnar að meta aðgengi að þjónustunni. Við gerum þá ráð fyrir að greiningar þessar liggi fyrir í lok árs og vonumst til að þær nýtist okkur við að móta bæði framtíðar- og rekstrarfyrirkomulag þolendamiðstöðva. Að mínu mati er því ekki tímabært á þessum tímapunkti að tekin sé ákvörðun um langtímasamninga ráðuneytisins við þolendamiðstöðvarnar. Bíðum eftir þessum greiningum og fáum lagarammann á hreint, en við munum áfram styðja við þær með fjárframlögum eins og gert hefur verið.

Virðulegi forseti. Varðandi gerendur ofbeldis og það að koma í veg fyrir ofbeldi þá vil ég segja að gerendur eru hópur sem þarf virkilega að huga að til að draga úr líkum á frekara ofbeldi. Sú staðreynd er orðin viðurkenndari í samfélaginu í dag en hún var ekki fyrir svo löngu. Við í ráðuneytinu höfum lengi stutt við meðferðarúrræðið Heimilisfrið sem veitir sálfræðimeðferð fyrir gerendur ofbeldis og nýtt úrræði, Taktu skrefið, var nýlega sett á laggirnar með stuðningi ráðuneytisins. Þar er um að ræða úrræði fyrir fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi og getur fengið aðstoð sérfræðinga á þessu sviði til að fá hjálp. En við þurfum líka í þessu samhengi að leggja mun meiri áherslu á forvarnir og koma þannig í veg fyrir að fólk verði gerendur og hyggst ráðuneytið á næstunni styðja við fleiri slík verkefni.



[18:01]
Gísli Rafn Ólafsson (P):

Herra forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur, fyrir þessa mikilvægu fyrirspurn. Það er líka ánægjulegt að heyra að hæstv. ráðherra hefur mikla löngun til að taka á þessum málaflokki og það er af hinu góða. Þegar unnið er með félagasamtökum sem brenna fyrir það að gera góða hluti þá erum við ekki bara með aðila sem gegna mikilvægu hlutverki í okkar samfélagi heldur aðila sem nýta fjármagnið mun betur en ríkið myndi nokkurn tíma gera. Það er ánægjulegt að skipa eigi starfshóp og koma með tillögur, en mig langar að hvetja hæstv. ráðherra og hv. þingmenn sem sitja í fjárlaganefnd til að tryggja að fjármagn sé til staðar meðan verið er (Forseti hringir.) að vinna í þessu vegna þess að fjölgun ofbeldismála er slík að við þurfum meira fjármagn en á síðasta ári.



[18:03]
Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Já, ég tek undir það og þakka framsögumanni þessarar fyrirspurnar og hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég tek sannarlega undir að það er mjög mikilvægt að sýna og sinna forvörnum, ekki síst af því að við viljum reyna að koma í veg fyrir að brotin eigi sér stað og hjálpa þeim sem þar eru undir, ekki síður en þeim sem fyrir brotunum verða.

Ég er ánægð að heyra áform ráðherra og tel að þau séu af hinu góða, hvort heldur sem um starfshópinn er að ræða og hans verkefni eða það að móta stefnu um þessar þolendamiðstöðvar. Eins og með margt gott sem gerist þá sprettur það upp úr grasrótinni og svo einhvern veginn vitum við ekki alveg hvernig við ætlum að hafa fyrirkomulagið. Því held ég að þetta sé mjög gott og tek alveg undir það sem hér var sagt áður. Þetta er verkefni sem við fáum í fjárlaganefnd á hverju einasta ári og þurfum að brúa bil af því að við erum einmitt ekki búin að móta okkur almennilega stefnu um hvernig við ætlum að hafa þetta.



[18:04]
Fyrirspyrjandi (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir hans svör. Það er skýrt að við erum á sömu blaðsíðu með það hvernig við viljum sjá þennan málaflokk þróast inn í framtíðina og ég fagna því mjög.

Að lokum langar mig aðeins að koma inn á það sem ráðherra nefndi hér áðan varðandi aðgerðir fyrir gerendur, en það er mikilvægt að gerendur ofbeldis leiti sér aðstoðar til að takast á við líf sitt. Svo það sé mögulegt þurfa einmitt, eins og hæstv. ráðherra nefndi, öflug úrræði að vera til staðar og Heimilisfriður hefur unnið ómetanlegt starf með gerendum ofbeldis í nánum samböndum og komið að meðferð í þeim málum. Eftirspurn eftir þjónustu Heimilisfriðar hefur aukist svakalega, hvort sem um má kenna ofbeldi í Covid eða aukinni vitundarvakningu, en það er greinilegt að eftirspurnin er til staðar.

Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvenær þær aðgerðir koma til framkvæmda og hvernig við getum gripið unga gerendur strax á unga aldri og þá með aðkomu foreldra og skóla, því að án gerenda erum við ekki með þolendur. En annars þakka ég kærlega fyrir gott samtal og hvet ráðherra áfram til góðra verka.



[18:05]
félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Aftur vil ég þakka fyrir þessa góðu umræðu sem ég tel afskaplega mikilvægt að fari fram á þingi, kannski ekki síst vegna þess að núna er í gangi aðgerðaáætlun um aðgerðir gegn ofbeldi sem rennur í raun sitt skeið á þessu ári. Staða þeirra aðgerða er sú að nú þegar er 70% þeirra lokið, 20% eru í vinnslu og allar eru aðgerðirnar hafnar. Því höfum við í sjálfu sér að nægu að vinna samkvæmt þessari aðgerðaáætlun núna á þessu ári og kannski því næsta. En ég tel að það sé mikilvægt að þegar við höfum dregið saman þessa þekkingu, greininguna sem ég var að ræða varðandi þolendamiðstöðvarnar og starfshópinn sem á að líta til laga- og reglugerðaumhverfisins, að við skoðum þá hvaða skref við ætlum að taka næst.

Þegar þessi aðgerðaáætlun var samþykkt hér á þingi þá fylgdi henni ekki sérstakt fjármagn. Því hafa ráðuneytin verið að færa til fjármagn hjá sér til að fjármagna þessa áætlun. Ég lét taka þetta saman í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og minnir að þetta séu um 250 milljónir sem eru alls að fara í þennan málaflokk í ráðuneytinu sem eru alveg umtalsverðir fjármunir. Þeim er mjög vel varið vegna þess að stærsti hlutinn af þessu fer til félagasamtaka sem eru að vinna ótrúlega flott starf. Við vitum að hver króna sem fer til félagasamtaka er venjulega mjög vel nýtt og alla vega ekki verr en hjá ríkinu.

Mig langar líka að benda á að í gegnum sérstakar fjárveitingar sem hafa fylgt út af kórónuveirufaraldrinum eru t.d., ef ég man rétt, 45 millj. kr. á þessu ári að fara í akkúrat þessi mál. Á næstu árum verður áfram fjármagn til þessara félagslegu aðgerða sem verða vonandi samþykktar í gegnum fjárlagafrumvarpið. Annars þakka ég aftur kærlega fyrir þessa umræðu. Við þurfum síðan að taka umræðuna um næstu skref, mögulega um aðra og nýja aðgerðaáætlun og fjármögnun hennar í framhaldinu.