[17:57]Útbýting:
Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:
„Undirritaður gerir það að tillögu sinni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá næsta fundar verði þau dagskrármál sem forseti leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 382. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, alþjóðleg vernd. Ef til þess kemur að þingið þurfi að verja miklum tíma í umræðu um frumvarp um útlendinga, sem hlýtur að teljast líklegt í ljósi þess hversu umfangsmiklar athugasemdir hafa verið gerðar við frumvarpið, er ástæða til að hafa áhyggjur af því að afgreiðsla annarra mála tefjist. Afar skammt er eftir af starfsáætlun Alþingis og mörg þeirra mála sem bíða eru viðkvæm í tíma en umrætt frumvarp um útlendinga er það svo sannarlega ekki og engin knýjandi þörf á að ljúka afgreiðslu þess fyrir áramót.
Þess er óskað að tillagan verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“
Undir þetta bréf ritar Andrés Ingi Jónsson. Þessi tillaga verður borin upp til atkvæða í upphafi næsta þingfundar.