Málshefjandi var .
[17:56]Útbýting:
[18:01]Útbýting:
Virðulegur forseti. Ég tek undir þakkir hv. þm. Bergþórs Ólasonar til forseta fyrir að hafa úrskurðað í þessum málum með þessum hætti. Ég tek líka undir orð hv. þingmanns eða fæ a.m.k. að gera fyrirvara að svo stöddu við þennan úrskurð og vænti þess að fá að skoða hann og þá úrskurði sem hér er vísað til frá síðasta kjörtímabili. En það eru ekki bara starfsreglur fastanefnda sem eru í uppnámi varðandi þetta heldur beinlínis þingskapalög. Tilvísun til 5. mgr. 8. gr. þingskapalaga er alveg fortakslaus um það að forseti hafi umsjón með starfi þingnefnda. Ég fæ ekki betur séð, sé þetta afstaða forseta til mála sem koma upp af þessum toga — sem eru vel að merkja afmörkuð mál, ekki alls konar ágreiningur sem kemur upp í nefndinni heldur sérstaklega ágreiningur um sérfræðiaðstoð sem er afar þröngt afmarkað í starfsreglum. Ég ætla því að leyfa mér að gera fyrirvara við þennan úrskurð en hvet forseta til að skoða þessi mál ítarlega í samráði við a.m.k. þingflokksformenn.
Virðulegur forseti. Ég þakka forseta fyrir að koma með þennan úrskurð þótt ég sé ekki sammála þessu. Mér finnst ástæða til að nefna í þessu samhengi að í 51. gr. þingskapalaga stendur:
„Ef að minnsta kosti fjórðungur nefndarmanna krefst þess að nefnd fái aðgang að gögnum frá stjórnvöldum, þ.m.t. sjálfstæðum stjórnvöldum, eða að teknar verði saman upplýsingar út af máli sem nefndin hefur til umfjöllunar skal stjórnvald verða við beiðni nefndarmanna þess efnis eins skjótt og unnt er og eigi síðar en sjö dögum frá móttöku beiðninnar. Beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt þessari málsgrein skal sett á dagskrá fundar nefndarinnar og afgreiðsla málsins skráð í gerðabók, sbr. 21. gr. Eftir fund nefndarinnar skal formaður hennar koma beiðninni á framfæri við stjórnvald.“
Virðulegur forseti. Ég held að það sé alveg skýrt í þingskapalögunum að réttur minni hlutans er einhver hér til að knýja fram upplýsingar um mál sem er í svo miklum ágreiningi sem raun ber vitni. Við erum að tala um þingmannafrumvarp sem er ekki einu sinni flutt af öllum þingmönnum meiri hlutans í nefndinni. Það hefur ekki hlotið lögformlega meðferð í ráðuneytum eða verið leitað álits lagadeildar þingsins á lögmæti frumvarpsins. Það er grundvallarágreiningur í þessu máli sem snýr að stjórnarskrárvörðum rétti þess fólks sem hefur rétt samkvæmt þeim lögum sem á að afnema. Þetta er ekkert smámál sem við erum að ræða hér um. Ef það á að vera endanlegur úrskurður hér að minni hlutinn geti ekki óskað eftir þessu, ekki sem einhverjum tafaleik vegna þess að við erum búin að vera að bíða hér og óska eftir ákveðnum gestum og upplýsingum síðan í nóvember.
(Forseti hringir.) Virðulegur forseti. Þetta getur ekki verið þannig að minni hlutinn sé bara úti í horni. Það er þá tilgangslítið fyrir okkur að taka þátt í nefndarstörfum eins og þeim hefur verið skipað í atvinnuveganefnd.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir úrskurðinn eða hvað við viljum kalla þetta. Það sem kemur nokkuð á óvart og ég held að verði að huga svolítið að í störfum nefnda — hér var búið að samþykkja beiðni um að Lagastofnun Háskóla Íslands kæmi með álit tengt þessu máli en það er afturvirkni, að þá geti síðan meiri hluti nefndar bara hoggið á það einhvern tímann í framhaldinu. Ég er dauðhræddur við þetta. Ég held að allir þingmenn átti sig á því hversu alvarlegt þetta er, að það sé bara hægt eftir á að höggva á þetta, henda þessu út úr nefnd eins og það hafi aldrei gerst. Hvernig á minni hlutinn yfirleitt að geta starfað þegar þetta er leyst með þessum hætti, að þetta sé bara allt í góðu, að þessi nálgun sé tekin fyrir? Ég vildi aðeins vekja athygli hv. þingmanna og hæstv. forseta þingsins á þessu, þetta finnst mér vera mjög alvarlegt í þessum málum.
Virðulegur forseti. Eins og aðrir hv. þingmenn þakka ég forseta fyrir úrskurð sinn og að hann sé hér kominn fram. Ég vil kannski byrja á að segja að ég skil vel að reglur þingsins séu þannig úr garði gerðar að þingstörf geti haldið áfram þó að ekki séu allir sammála og það þurfi að vera einhverjir varnaglar við því að ekki sé alltaf hægt að áfrýja. En ég er mjög hugsi: Hver er þá hin raunverulega minnihlutavernd eða hver er hinn faglegi öryggisventill hér í þinginu þegar nefndarstörfum er háttað eins og hv. stjórnarmeirihluti hefur háttað þeim frá því að þetta kjörtímabil hófst? Ítrekað hefur verið neitað um gögn, ítrekað neitað um gestakomur, mál ítrekað tekin út með valdi, ítrekað eru óskir hunsaðar, og nú er fyrri ákvörðun um beiðni um gögn afturkölluð. Það var gestur nefndarinnar sem ítrekaði að þetta væri nauðsynlegt gagn til að halda þessu áfram. Það er þetta sem veldur mér áhyggjum og vekur þá spurningu hvort hvergi sé hægt að verjast svona vinnubrögðum. Þau eru alvarleg. Þjóðin, fólk og fyrirtæki, er farin að gjalda fyrir þessi vinnubrögð ítrekað og áfram á að halda með hálfgerðu ofbeldi. Þetta er alvarlegt og ég hef áhyggjur af því ef það eru engin öryggistól hér í þingsköpum Alþingis til að vinna gegn þessum vinnubrögðum meiri hlutans.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka frú forseta fyrir að taka málið til skoðunar og koma svo hér með úrskurð samkvæmt óskum. Úrskurðurinn er hins vegar þess háttar að hann kallar fram ákveðinn ótta. Þó að ég geri mér fulla grein fyrir því að hér þarf alltaf að vera einhvers konar meiri hluti til afgreiðslu allra mála þá sýnist mér fljótt á litið að þessi úrskurður sé með þeim hætti að það séu raunverulegar ástæður til að hræðast það að hér sé verið að marka stefnu sem gerir minni hlutanum algerlega ófært að kalla til frekari gagna þegar þess er jafnvel nauðsyn. Við höfum nú séð það á þessu kjörtímabili þessarar ríkisstjórnar að það hefur áður þurft að kalla til gagna sem svo nýttust meiri hlutanum og löguðu jafnvel mál. Ég þakka frú forseta fyrir að bregðast við en úrskurðurinn er vonbrigði.
Frú forseti. Ég verð nú að byrja á því að þakka forseta fyrir að hafa hlustað á minni hlutann í dag. En ég tek undir með öðrum sem hér hafa talað, ég er mjög hugsi yfir niðurstöðu forseta og tel að þetta geti haft afleiðingar sem við sjáum ekki alveg fyrir. Á löggjafanum hvílir sú skylda að leggja mat á það hvort lagasetning sem hér á sér stað samrýmist stjórnarskrá. Hér erum við t.d. að tala um að skerða atvinnuréttindi fólks og þar með er farið gegn stjórnarskrávörðum réttindum fólks.
Þetta mat varðandi lagasetninguna fer að jafnaði fram í ráðuneytum og í vissum tilfellum hér á Alþingi. En í þessu máli hefur þetta mat alls ekki átt sér stað. Þetta er þingmannamál eins og hér hefur margoft verið sagt í dag og þess vegna hefur það ekki farið í gegnum það ferli sem við teljum ákjósanlegt, í gegnum ráðuneytin. Við erum einfaldlega að óska eftir því að löggjafinn sinni þessari skyldu sinni að þetta mat sé framkvæmt, hvort þetta frumvarp, sem meiri hlutinn vill með offorsi koma hér í gegn, samrýmist mannréttindareglu stjórnarskrárinnar og meðalhófsreglunni. Ef allt væri eðlilegt og vinnubrögð meiri hlutans væru eðlileg lægi þetta mat fyrir.
Við erum að standa vörð um vandaða lagasetningu Alþingis. Ég segi það ekki nógu oft hér í dag og það er eitthvað sem við hljótum öll að geta sammælst um hér í þessum sal.