131. löggjafarþing — 126. fundur
 9. maí 2005.
veiting ríkisborgararéttar, 1. umræða.
frv. allshn., 804. mál. — Þskj. 1345.

[14:03]
Frsm. allshn. (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um veitingu ríkisborgararéttar frá allsherjarnefnd.

Allsherjarnefnd bárust 54 umsóknir um ríkisborgararétt á 131. löggjafarþingi og leggur nefndin til að 17 einstaklingum, sem nefndir eru í þskj. 1345, verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur að þessu sinni.