140. löggjafarþing — 111. fundur
 1. júní 2012.
tilkynning um skriflegt svar.

[10:31]
Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 1264, um fjárheimildir og starfsmenn Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Ráðuneytið tilkynnir að úrvinnsla fyrirspurnarinnar hefur reynst tímafrekari en ætlað var en mun svara henni eins fljótt og auðið er.