133. löggjafarþing — þingsetningarfundur

ávarp aldursforseta.

[14:18]
Hlusta

Aldursforseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Ég býð háttvirta alþingismenn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá von að störf Alþingis, 133. löggjafarþings, sem er að hefjast, verði landi og þjóð til heilla.

Fyrir hönd okkar alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga góða samvinnu við það eins og endranær.