146. löggjafarþing — 44. fundur, 20. mars 2017.
Varamenn taka þingsæti.
Bjarni Jónsson og Oktavía Hrund Jónsdóttir hafa undirskrifað drengskaparheit að stjórnarskránni og eru boðin velkomin til starfa á Alþingi.
Borist hefur bréf frá 3. þm. Norðaust. að hann geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Björn Valur Gíslason.