146. löggjafarþing — 78. fundur,  1. júní 2017.

umgengni um nytjastofna sjávar o.fl.

272. mál
[00:37]
Horfa

Gunnar Ingiberg Guðmundsson (P):

Virðulegi forseti. Það háttar þannig til þegar maður gerir í buxurnar þá er rosalega gott að viðurkenna það. Seinast gekk ég frá málinu eins og það væri í atkvæðagreiðslu eftir 3. umr. í skýringargögnum mínum og dreifði því á hv. þingflokk. Það er algjörlega minn skítur og það er játað hér og staðfest fyrir allri alþjóð.