146. löggjafarþing — 79. fundur,  1. júní 2017.

tillögur dómsmálaráðherra um skipun dómara við Landsrétt.

622. mál
[14:39]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu og fyrir að reifa sjónarmið sín í þessu máli. Það sem mig langar til að spyrja hann út í snýr að rannsóknarskyldunni. Í áliti minni hluta nefndarinnar er fyrsta atriðið sem dregið er fram að ekki sé sýnt að ráðherra hafi sinnt rannsóknarskyldu sinni. Ég hef ekki fengið neinar útskýringar frá minni hlutanum hingað til um að hvaða leyti ráðherra hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni.

Það liggur fyrir í þessu máli að ráðherra hefur farið yfir gögn málsins, farið yfir umsóknir, farið yfir umsögn nefndarinnar, farið yfir andmæli umsækjenda og hefur sérstaklega kallað eftir vinnugögnum nefndarinnar. Þess vegna vil ég fá útskýringu, ef hv. þingmaður er sammála þessu, á því hvað það er sem vantar upp á í þessu máli. Hvað vantar upp á til að hægt sé að standa við þá fullyrðingu að ekki sé sýnt að ráðherra hafi uppfyllt rannsóknarskyldu sína?