148. löggjafarþing — 10. fundur,  28. des. 2017.

störf þingsins.

[14:01]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Leikhús fáránleikans er listform sem lýsir fáránleika mannlegrar tilveru. Persónurnar tala í kross og í klisjum, segja eitt og gera annað. Atkvæðagreiðslan hér rétt fyrir jól í tengslum við fjárlagafrumvarpið minnti mig á þetta leikhús.

Ég skal skýra þetta nánar. Reykjanesbær boðaði til fundar rétt fyrir kosningar með þingmönnum Suðurkjördæmis og fleirum þar sem bærinn lagði fram skýrslu sem sýndi fram á að svæðið fengi hlutfallslega lægri fjárveitingar til opinberra stofnana en sambærilegar stofnanir á landsbyggðinni. Þingmenn voru ábúðarfullir og sögðu að það yrði að leiðrétta ranglætið strax.

Ég sem hér stend flutti breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið þess efnis að leiðrétta nú ranglætið á Suðurnesjum og lagði til aukafjárveitingu til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja upp á 90 milljónir og lögreglustjórans á Suðurnesjum upp á 70 milljónir. Því er skemmst frá að segja að þingmenn búsettir á Suðurnesjum, hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Vilhjálmur Árnason, sögðu nei við breytingartillögu minni. Suðurnesjaþingmenn sem höfnuðu því að auka útgjöld til Suðurnesja verða að standa frammi fyrir kjósendum sínum og útskýra hvers vegna.