Borgarahreyfingin
Borgarahreyfingin var stofnuð árið 2009 í kjölfar efnahagskreppunnar á Íslandi og fékk fjóra þingmenn kjörna í kosningum sama ár. Þingflokkurinn leystist upp þegar þrír þingmenn Borgarahreyfingarinnar stóðu að stofnun Hreyfingarinnar. Einn þingmaður hafði áður sagt sig frá Borgarahreyfingunni og sat utan þingflokka.