14.2.2008

Kristinn H. Gunnarsson áheyrnarfulltrúi í forsætisnefnd

Á fundi forsætisnefndar 8. febrúar síðastliðinn féllst forsætisnefnd á erindi þingflokks Frjálslynda flokksins þess efnis að þingflokkurinn fengi áheyrnarfulltrúa á fundum nefndarinnar. Með breytingum á lögum um þingsköp Alþingis í desember síðastliðnum (lög nr. 161/2007) var þingflokki sem ekki á fulltrúa í forsætisnefnd heimilt, með samþykki forsætisnefndar, að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu á fundum hennar, sbr. 1. mgr. 10. gr. þingskapa. Þingflokkur Frjálslynda flokksins hefur tilnefnt Kristin H. Gunnarsson, formann þingflokksins, sem áheyrnarfulltrúa í nefndinni.