23.4.2008

Aðstoðarmenn þingmanna

Árni Rúnar Þorvaldsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Lúðvíks Bergvinssonar og Kristín Ágústsdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarmaður Ólafar Nordal. Ráðning aðstoðarmanna þingmanna er samkvæmt reglum um aðstoðarmenn formanna stjórnmálaflokka og alþingismanna úr Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmum.