Vinnuhópur um endurskoðun kosningalaga

Í vinnuhópnum, sem forseti Alþingis skipaði í júní 2014, voru: Þórir Haraldsson lögfræðingur, formaður hópsins, Hermann Sæmundsson stjórnmálafræðingur,  skrifstofustjóri í innanríkisráðuneytinu, Margrét Hauksdóttir lögfræðingur, forstjóri Þjóðskrár Íslands, og Magnús Karel Hannesson kennari, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Erindisbréf vinnuhópsins.

Með vinnuhópnum starfaði Þórhallur Vilhjálmsson og Skúli Guðmundsson, lögfræðingar á skrifstofu Alþingis, Ólafur Hjörleifsson, lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu, og Ástríður Jóhannesdóttir, lögfræðingur hjá Þjóðskrá Íslands.

Vegna starfs vinnuhópsins óskaði  forseti Alþingis þess að þingflokkar tilnefndu fulltrúa sína sem hópurinn gæti leitað til og upplýst um framgang vinnunnar. Þingflokkar tilnefndu eftirfarandi einstaklinga: Freyju Haraldsdóttur varaþingmann, fyrir Bjarta framtíð, Helga Hrafn Gunnarsson þingmann, fyrir Pírata, Katrínu Jakobsdóttur þingmann, fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð, Katrínu Theodórsdóttur lögmann, fyrir Samfylkinguna – jafnaðarmannaflokk Íslands, Unni Brá Konráðsdóttur þingmann, fyrir Sjálfstæðisflokk, og Vigdísi Hauksdóttur þingmann, fyrir Framsóknarflokk.

Til þess að starf vinnuhópsins yrði sem árangursríkast ásetti  hann sér frá byrjun að hafa samband við sem flesta sem að framkvæmd kosninga koma og opnaði vefsíðu svo að almennir kjósendur eigi þess kost að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við vinnuhópinn.

Í því skyni var öllum sýslumönnum (kjörstjórum) landsins sendur spurningalisti vegna kaflans í kosningalögum um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. Kallað var eftir umsögn þeirra um framkvæmd þessarar atkvæðagreiðslu á síðastliðnum árum og óskað eftir tillögum þeirra að breytingum.

Þá var sérfræðingum frá ÖSE boðið til fundar við vinnuhópinn í febrúar 2015 ásamt ýmsum fulltrúum þeirra sem að framkvæmd kosninga koma, svo sem fulltrúum hlutaðeigandi ráðuneyta, landskjörstjórnar, yfirkjörstjórna og nokkurra undirkjörstjórna sveitarfélaga, sýslumanna, þingflokka og einnig framkvæmdastjórum þeirra.

Einnig að funda með ýmsum fulltrúum félaga fatlaðs fólks vegna ákvæða í kosningalögum um rétt þess til að nýta sér kosningarréttinn og tilhögun á kjörstöðum við þá athöfn.