74. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 16. maí 2014 kl. 08:15


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 08:15
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 08:15
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:05
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 08:15
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 08:15
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:05
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:20

Páll Valur Björnsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:15
Nefndin samþykkti fundargerð nr. 73.

2) Heimsókn skólastjóra danska lögregluskólans Kl. 08:16
Á fund nefndarinnar komu Michael Flemming Rasmussen skólastjóri danska lögregluskólans og Frímann Birgir Baldursson
varaformaður LL. Ræddu þeir framtíðarskipulag menntunarmála lögreglumanna hér á landi og skipulag menntunarmála í Danmörku.

3) 380. mál - framhaldsskólar Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar komu Jón Vilberg Guðjónsson og Þórir Ólafsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Fóru þeir yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 561. mál - menntun og ráðning kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla Kl. 10:10
Nefndin afgreiddi málið.
Allir viðstaddir nefndarmenn voru samþykkir álitinu.

5) Önnur mál Kl. 10:24
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:24