15. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 11. nóvember 2014 kl. 09:00


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 09:00
Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:11
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 214. mál - framhaldsskólar Kl. 09:02
Á fund nefndarinnar komu Heiðar Ingi Svansson frá Iðnú - Iðnmennt, Egill Örn Jóhannsson frá félagi íslenskra bókaútgefanda og Aldís Yngvadóttir og Ellen Klara Eyjólfsdóttir frá Námsgagnastofnun. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 17. mál - verslun með áfengi og tóbak o.fl. Kl. 09:45
Á fund nefndarinnar komu Heiða Björg Pálmadóttir frá Barnaverndarstofu, Elísabet Gísladóttir frá Umboðsmanni barna, Ólaf Þ. Stephensen og Björg Ástu Þórðardóttir frá Félagi atvinnurekanda, Aðalstein Gunnarsson, Valdór Bóasson og Róbert Haraldsson frá Bindindinsamtökunum IOGT, Guðna Björnsson og Árna Einarsson frá Fræ - fræðsla og forvarnir og Geir Gunnlaugsson, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir og Rafn M. Jónsson frá Landlæknisembættinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Vopnaeign lögreglunnar. Kl. 11:30
Bókun - Vopnakaup lögreglu.
Guðbjartur Hannesson, Páll Valur Björnsson, Helgi Hrafn Gunnarsson og Bjarkey Gunnarsdóttir óska eftir því að fært verði til bókar ósk um að unnin verði af Innanríkisráðuneytinu og lögreglu samantekt um feril máls varðandi vopnakaup Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar.

5) Túlkaþjónusta Kl. 11:40
Bókun - Túlkaþjónusta í daglegu lífi.
Guðbjartur Hannesson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Páll Valur Björnsson og Bjarkey Gunnarsdóttir leggja fram bókun þess efnis að í byrjun október s.l. lá ljóst fyrir að fjármagn í svokölluðum félagslega sjóði var uppurið fyrir árið 2014. Félagslega sjóðnum eða Þorgerðarsjóði er ætlað að greiða fyrir túlkaþjónustu í daglegu lífi þeirra einstaklinga sem á þurfa að halda og rétt eiga á.
Allsherjar- og menntamálanefnd boðaði á sinn fund formann félags Heyrnarlausra og starfsmann Fjólu félags fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu þann 6. nóvember sl. til að fara yfir stöðuna og afleiðingar þess að ekkert fjármagn væri til ráðstöfunar til félagslegrar túlkunar.
Ljóst er að skerðing á túlkun skerðir jafnframt sjálfstæði og frelsi einstaklinga, sem þurfa á túlkaþjónustu að halda og hefur veruleg áhrif á þeirra daglega líf. Mikilvægt er að tryggja að þessi þjónusta haldi áfram, hver sem ástæðan er fyrir því að sjóðurinn hefur tæmst. Réttindi einstaklinganna skiptir þar mestu máli.
Á fundinum kom fram að þessi þjónusta er hér í lágmarki m.v. Norðurlöndin og brýnt að gera betur.
Allsherjar- og menntamálanefnd beinir þeirri áskorun til menntamálaráðherra og til fjárlaganefndar að gefa strax fyrirheit um fjárveitingu til loka ársins og heitir stuðningi við að bæta við fjárveitingar í fjáraukalögum 2014 til að hægt verði að tryggja þessa þjónustu áfram.
Hér er um að ræða mannréttindi viðkomandi einstaklinga. Upphæðin sem vantar er ekki há en m.v. kostnað fyrri hluta ársins þá vantar 3,5 - 4 mkr. til að tryggja þessa þjónustu út árið.

6) Önnur mál Kl. 11:55
Fleira var ekki rætt.

Fundi slitið kl. 11:55