86. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 15. september 2016 kl. 12:00


Mættir:

Guðmundur Steingrímsson (GStein) 1. varaformaður, kl. 12:05
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 12:05
Ásta Guðrún Helgadóttir (ÁstaH) fyrir Helga Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 12:05
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 12:05
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 12:05
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 12:10
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 12:05

Unnur Brá Konráðsdóttir og Haraldur Einarsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 12:05
Fundargerð nr. 85 var samþykkt.

2) 657. mál - meðferð einkamála Kl. 12:06
Nefndin afgreiddi álit sitt. Að álitinu standa LínS, JMS og VilÁ. UBK og HE standa að álitinu í samræmi við 4. mgr. 18. gr. reglna um fastanefndir Alþingis.

3) 794. mál - námslán og námsstyrkir Kl. 12:25
Á fund nefndarinnar komu Ásta Sigrún Helgadóttir og Lovísa Ósk Þrastardóttir frá Umboðsmanni skuldara. Fóru þær yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 13:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:00