92. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 22. september 2016 kl. 08:30


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 08:30
Guðmundur Steingrímsson (GStein) 1. varaformaður, kl. 08:40
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 08:40
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 08:45
Haraldur Einarsson (HE), kl. 08:40
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 08:30
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 08:40

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Vilhjálmur Árnason voru fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:30
Fundargerðir 86-91 voru samþykktar.

2) 870. mál - höfundalög Kl. 08:35
Gestin hóf umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Jón Vilberg Guðjónsson og Agnesi Guðjónsdóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, Jakob Frímann Magnusson frá STEF og Gunnar Guðmundsson frá Innheimtumiðstöð gjalda. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 09:30


Fundi slitið kl. 09:30