11. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 9. febrúar 2017 kl. 09:00


Mættir:

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (ÁslS) formaður, kl. 09:00
Nichole Leigh Mosty (NicM) 1. varaformaður, kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) 2. varaformaður, kl. 09:37
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:00
Einar Brynjólfsson (EB), kl. 09:00
Eygló Harðardóttir (EyH), kl. 09:00
Pawel Bartoszek (PawB), kl. 09:02
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 09:04
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞÆ), kl. 09:02

Nefndarritari: Kristel Finnbogad. Flygenring

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 10. fundar var samþykkt.

2) Þingmálaskrá 146. löggjafarþings Kl. 09:02
Á fund nefndarinnar komu Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra og Bryndís Helgadóttir og Laufey Rún Ketilsdóttir frá innanríkisráðuneyti. Dómsmálaráðherra kynnti þingmálaskrá sína fyrir 146. löggjafarþing og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 113. mál - dómstólar Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar komu Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra og Bryndís Helgadóttir og Laufey Rún Ketilsdóttir frá innanríkisráðuneyti. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi málsmeðferð.

4) Önnur mál Kl. 10:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20