42. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 22. mars 2012 kl. 09:36


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 09:36
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 09:36
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 09:36
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:36
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 10:13
Þór Saari (ÞSa), kl. 09:36

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 09:36
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt án athugasemda.

2) 508. mál - framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum og tollalög Kl. 09:36
Á fund nefndarinnar komu Haraldur Benediktsson og Elías Blöndal Guðjónsson frá Bændasamtökum Íslands, Gunnar Þór Gíslason og Sveinn V. Jónsson frá Matfugli ehf., Pálmi Vilhjálmsson frá Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði, Guðni Ágústsson frá Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði og Samtökum mjólkur- og kjötvinnslufyrirtækja og Ragheiður Héðinsdóttir og Bjarni Már Gylfason frá Samtökum iðnaðarins. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) 138. mál - matvæli Kl. 11:13
Nefndin ræddi málið.

4) 61. mál - matvæli Kl. 11:13
Nefndin ræddi málið.

5) 409. mál - raforkulög Kl. 11:16
Nefndin ræddi málið.

6) 623. mál - skipan ferðamála Kl. 11:25
Lögð var fram tillaga um að senda málið til umsagnar. Tilagan var samþykkt.

7) Önnur mál. Kl. 11:28
ÓÞ og SER voru fjarverandi.
BVG var fjarverandi skv. tilkynningu.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:28