76. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 30. maí 2012 kl. 19:11


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 19:11
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 19:11
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 19:11
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 19:11
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 19:11
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 19:11
Sigmundur Ernir Rúnarsson (SER), kl. 19:11
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 19:11
Þór Saari (ÞSa), kl. 19:11

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) 508. mál - framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum og tollalög Kl. 19:11
Á fund nefndarinnar komu Sigurgeir Þorgeirsson og Ása Þórhildur Þórðardóttir frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu ráðuneytisins til hugmynda nefndarinnar um tillögur um breytinga á málinu og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

2) 658. mál - veiðigjöld Kl. 19:31
Nefndin ræddi málið. Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti og tillögum til breytinga á málinu. Þá var lögð fram tillaga um að nefndin afgreiddi málið frá sér á grundvelli draganna. Tillagan var samþykkt með atkvæðum KLM, LRM, BVG, ÓÞ og SER. EKG, JónG, SIJ og ÞSa greiddu atkvæði gegn tillögunni.

3) 657. mál - stjórn fiskveiða Kl. 20:02
Nefndin ræddi málið. Fyrir fundinn voru lögð drög að tillögum til breytinga á málinu.

4) Önnur mál. Kl. 20:40
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerðum 66. til 75. funda nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 20:40