24. fundur
atvinnuveganefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 6. desember 2012 kl. 08:39


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 08:39
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 08:39
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 08:39
Jónína Rós Guðmundsdóttir (JRG), kl. 08:39
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:48
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 08:48

BVG, ÓÞ og ÞSa voru fjarverandi.

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 09:32
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 272. mál - framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum og tollalög Kl. 08:40
Á fund nefndarinnar komu Elías Blöndal Guðjónsson frá Bændasamtökum Íslands og Pálmi Vilhjálmsson frá Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu samtakanna til þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) Önnur mál. Kl. 09:32
Nefndin ræddi mögulega dagskrá næsta fundar.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 09:33