27. fundur
atvinnuveganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 23. janúar 2014 kl. 09:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:00

Björt Ólafsdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Jón Þór Ólafsson og Þorsteinn Sæmundsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) 140. mál - eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru Kl. 09:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Eyjólf Sigurðsson og Guðmund Siemsen frá Fóðurblöndunni, Pétur Reimarsson frá Samtökum atvinnulífsins og Ragnheiði Héðinsdóttur frá Samtökum iðnaðarins.

2) 187. mál - visthönnun vöru sem notar orku Kl. 09:45
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Ingibjörgu Halldórsdóttur frá Mannvirkjastofnun og Tryggva Axelsson og Helgu Sigmundsdóttur frá Neytendastofu.

3) 59. mál - raforkustrengur til Evrópu Kl. 10:20
Því var frestað að taka málið fyrir.

4) Önnur mál. Kl. 10:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20