38. fundur
atvinnuveganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 3. mars 2014 kl. 15:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 15:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 15:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 15:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 15:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 15:10
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 15:20
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 15:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 15:10

Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.
Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 16.10.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 15:00
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 153. mál - stjórn fiskveiða Kl. 15:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Hjálmar Vilhjálmsson, Óskar Garðarsson og Yngva Óttarsson frá Dögun (Óskar tók þátt í fundinum gegnum síma), Jón Hermann Óskarsson frá Flóka ehf., Gísla Jón Kristjánsson frá ÍS-47, Jón Guðbjartsson frá Kampa ehf., Adolf Guðmundsson og Ólaf Marteinsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Jón Jónsson lögmann og Sigurð Sigurbergsson frá Soffaníasi Cecilssyni hf.

3) Önnur mál. Kl. 18:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 18:15