49. fundur
atvinnuveganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 3. apríl 2014 kl. 09:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00

Ásmundur Friðriksson og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, Björt Ólafsdóttir og Þórunn Egilsdóttir voru fjarverandi vegna annarra þingstarfa.
Þorsteinn Sæmundsson vék af fundi kl. 11.10.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð frá 6. mars sl. var samþykkt.

2) 319. mál - fiskeldi Kl. 09:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Gísla Jónsson og Viktor Pálsson frá Matvælastofnun, Ásdísi Hlökk Theódórsdóttur, Otti Björgvin Óskarsson og Rut Kristinsdóttur frá Skipulagsstofnun og Aðalbjörgu Birnu Guðmundsdóttur, Kristínu Lindu Árnadóttur og Sigrúnu Ágústsdóttur frá Umhverfisstofnun.

3) 375. mál - smáþörungaverksmiðja Algalífs Iceland ehf. á Reykjanesi Kl. 11:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Orra Björnsson frá Algalíf Iceland ehf.

4) Önnur mál. Kl. 11:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00