31. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 11. desember 2014
kl. 09:30
Mættir:
Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:30Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:30
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:30
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:30
Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir
Bókað:
1) Fundargerð. Kl. 09:30
Fundargerðir 24.-26. fundar voru samþykktar.
2) 154. mál - vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu Kl. 09:30
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Ólaf Friðriksson og Rebekku Hilmarsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
3) Önnur mál. Kl. 10:20
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:20