50. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 9. mars 2015
kl. 15:15
Mættir:
Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 15:15Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 15:15
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 15:15
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:15
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 15:15
Kristján L. Möller (KLM), kl. 15:15
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 15:15
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 15:15
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 15:15
Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 15:15
Samþykktar voru fundargerðir 47. og 48. fundar.
2) 514. mál - lax- og silungsveiði Kl. 15:15
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Óðinn Sigþórsson frá Landssambandi veiðifélaga og Jörund Gauksson frá Veiðifélagi Árnesinga.
3) Staða svína- og alifuglabænda. Kl. 16:10
Nefndin fékk á sinn fund Björgvin Bjarnason, Geir Gunnar Geirsson, Jón Magnús Jónsson, Svein Jónsson og Mattías Guðmundsson og var rætt um stöðu svína- og alifuglabænda.
4) 421. mál - leiga skráningarskyldra ökutækja Kl. 17:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Brynhildi Pálmarsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
5) 305. mál - raforkulög Kl. 17:20
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Ingva Má Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
6) Önnur mál. Kl. 17:20
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 18:00