57. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 16. apríl 2015 kl. 09:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:05
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:05
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:05
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:05
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:05
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:05
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:05
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:05
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:05

Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.
Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 9:45.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 09:05
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 11. mál - ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi Kl. 09:05
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Þórð Reynisson atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Lilju Sturludóttur og Lindu Garðarsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

3) 421. mál - leiga skráningarskyldra ökutækja Kl. 09:40
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Brynhildi Pálmarsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

4) 420. mál - fjárfestingarsamningur við Thorsil ehf. um kísilmálmverksmiðju í Helguvík í Reykjanesbæ Kl. 09:40
Málið var afgreitt frá nefndinni. Undir nefndarálit rita: JónG, HarB, ÁsF, KLM, PJP, ÞorS, ÞórE. BjÓ skilar séráliti. LRM skilar séráliti.

5) Önnur mál. Kl. 10:10
LRM óskaði eftir því að rætt yrði um yfirvofandi verkfall dýralækna í nefndinni.

Fundi slitið kl. 10:10