22. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 23. febrúar 2016 kl. 09:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:05
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:05
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:05
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:05
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:05
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:05
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:05
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:05

Kristján L. Möller boðaði forföll.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:05
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 457. mál - veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald Kl. 09:05
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Árnýju Sigurðardóttur og Óskar Ísfeld frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Öldu Hrönn Jóhannsdóttur og Heiðu Gestsdóttur frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Örn Sigurðsson frá Reykjavíkurborg og Gunnar Val Sveinsson og Evu Silvernail frá Samtökum ferðaþjónustunnar.

3) 372. mál - stefna um nýfjárfestingar Kl. 10:40
Rætt var um málið.

4) Önnur mál Kl. 10:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:50