41. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 10. maí 2016 kl. 09:05


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:05
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:05
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:20
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:05
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:05
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:05
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:05

Kristján L. Möller boðaði forföll.
Þorsteinn Sæmundsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) 457. mál - veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald Kl. 09:05
Málið var afgreitt frá nefndinni. Undir nefndarálit með breytingartillögu rita: JónG, LRM, HarB, ÁsF, BjÓ, KLM, PJP, ÞorS, ÞórE. KLM og ÞorS rituðu undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.
Ákveðið var að nefndin flytji frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.

2) 618. mál - tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi Kl. 09:35
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

3) Önnur mál Kl. 10:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00