46. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 24. maí 2016 kl. 09:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:10
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:45
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:10
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:00

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 37. fundar var samþykkt.

2) 680. mál - búvörulög o.fl. Kl. 09:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Steinþór Skúlason frá Landssamtökum sláturleyfishafa.

3) Meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla skv. 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006. Kl. 10:10
Nefndin hélt áfram umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Baldur B. Erlingsson og Hinrik Greipsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

4) 680. mál - búvörulög o.fl. Kl. 11:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Ágúst Pétursson, Jóhann Ágústsson (símafundur), Jóhann Ragnarsson, Gunnar Björnsson (símafundur) og Guðbjart Gunnarsson.

5) Önnur mál Kl. 12:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:50