13. fundur
atvinnuveganefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 12. mars 2018 kl. 15:15


Mættir:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 15:15
Inga Sæland (IngS) 1. varaformaður, kl. 15:15
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 15:15
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:15
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 15:30
María Hjálmarsdóttir (MH) fyrir Albertínu Friðbjörgu Elíasdótur (AFE), kl. 15:15
Njáll Trausti Friðbertsson (NF), kl. 15:15
Sigríður María Egilsdóttir (SME) fyrir Þorgerði K. Gunnarsdóttur (ÞKG), kl. 15:15
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 15:15

Smári McCarthy boðaði forföll.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:15
Fundargerð 11. fundar var samþykkt.

2) 330. mál - matvæli og dýralæknar og heilbrigðisþjónusta við dýr Kl. 15:15
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið og fékk á sinn fund Eggert Ólafsson og Sigurgeir Þorgeirsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

3) 331. mál - Matvælastofnun Kl. 15:15
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið og fékk á sinn fund Eggert Ólafsson og Sigurgeir Þorgeirsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

4) 115. mál - raforkulög og stofnun Landsnets hf. Kl. 16:15
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Pétur Blöndal og Ragnar Guðmundsson fyrir hönd Samáls.

5) Stjórn fiskveiða Kl. 16:50
Nefndin fjallaði um fiskveiðistjórnunarkerfið hér á landi á fékk á sinn fund Jón Kristjánsson fiskifræðing.

6) Önnur mál Kl. 17:40
Rætt var almennt um mál í nefndinni og afgreiðslu þeirra.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 17:45