18. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 24. nóvember 2011
kl. 13:15
Mættir:
Helgi Hjörvar (HHj) formaður, kl. 13:15Amal Tamimi (AT) fyrir SkH, kl. 13:40
Eygló Harðardóttir (EyH) fyrir BJJ, kl. 13:15
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 13:15
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 13:15
Lilja Mósesdóttir (LMós), kl. 13:15
Margrét Tryggvadóttir (MT), kl. 13:15
Oddný G. Harðardóttir (OH) fyrir MSch, kl. 13:40
Tryggvi Þór Herbertsson (TÞH), kl. 13:15
Þráinn Bertelsson (ÞrB), kl. 13:15
Nefndarritari: Eiríkur Áki Eggertsson
Bókað:
1) Fundargerðir síðustu funda. Kl. 13:15
Drögum af fundargerðum síðustu funda, nr. 14., 15, 16. og 17., var dreift og þau samþykkt. ÞrB áréttaði almenna fyrirvara sína varðandi frágang fundargerða sem forsætisnefnd er með til skoðunar.
2) 1. mál - fjárlög 2012 Kl. 13:20
Á fundinum var dreift drögum að áliti til fjárlaganefndar.
Formaður lagði síðan til að málið yrði tekið til afgreiðslu.
- Enginn nefndarmanna gerði athugasemd við afgreiðslu málsins.
- Með á álitinu: HHj, ÞrB, LRM, OH, AT.
3) 12. mál - úttekt á neytendavernd á fjármálamarkaði Kl. 13:40
Á fundinum var dreift drögum að áliti til allsherjar- og menntamálanefndar.
Formaður lagði síðan til að málið yrði tekið til afgreiðslu að teknu tilliti til athugasemda sem fram komu.
- Enginn nefndarmanna gerði athugasemd við afgreiðslu málsins.
- Með á álitinu: HHj, ÞrB, LRM, GÞÞ, TÞH, LM, EyH.
- Margrét Tryggvadóttir styður álitið.
4) Endurskoðun þjóðhagsspár. Kl. 13:45
Á fundinn komu Marinó Melsted, Björn Ragnar Björnsson og Elísa kaloinen frá Hagstofu Íslands og kynntu þjóðhagsspá, vetur 2011, sem birt var í dag. Að lokinni kynningu svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna.
Nefndarmenn fengu afhent eintak af þjóðhagsspáinni á fundinum ásamt yfirlitspunktum sem gestirnir studdu kynningu sína við.
5) EES-aðlögun (greiðslufrestur við kaup á vörum og þjónustu). Kl. 15:05
Á fundinn komu Þóra Hjaltested frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti, Tryggvi Axelsson frá Neytendastofu, Andrés Guðmundsson frá Samtökum verslunar og þjónustu.
Rædd var tilskipun nr. 2011/7/EU frá 16. febrúar 2011 um átak gegn greiðsludrætti í verslunarviðskiptum.
Málinu var vísað til umsagnar efnahags- og viðskiptanefndar frá utanríkismálanefnd sem fjallar um málið á grundvelli reglna um þinglega meðferð EES-mála.
6) Meðferð upplýsinga í þingnefndum, eigendur nýju bankanna, uppgjör gömlu og nýju bankanna, uppgjör lána. Kl. 15:10
Á fundinn komu Ragnar Hafliðason, Guðmundur Jónsson, Arnar Þór Sæþórsson og Gísli Örn Kjartansson frá Fjármálaeftirlitinu.
Dreift var á fundinum erindi Gunnars Þ. Andersen og Arnars Þórs Sæþórssonar f.h. eftirlitsins til formanns efnahags- og viðskiptanefndar frá 21. nóvember sl. Erindið varðar meðferð upplýsinga í þingnefndum.
Formaður lýsti í áheyrn gestanna afstöðu sinni og viðstaddra nefndarmanna til erindisins.
Að lokinni umfjöllun um meðferð upplýsinga í þingnefndum tóku gestirnir til við að svara spurningum GÞÞ og annarra nefndarmanna varðandi aðra þætti þessa dagskrárliðar (eigendur nýju bankanna, uppgjör gömlu og nýju bankanna, uppgjör lána).
Þóra Hjaltested frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti var viðstödd umfjöllun þessa dagskrárliðar að frátöldum þeim er varðar meðferð upplýsinga í þingnefndum.
7) Málefni Byr og SpKef. Kl. 16:18
Þessum dagskrárlið var frestað.
8) önnur mál Kl. 14:40
Formaður lagði á fundinum til drög að samþykkt er varðar vægi verðtryggingar.
Að loknum umræðum nefndarmanna var svohljóðandi bókun samþykkt einróma:
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis samþykkir að hefja á vettvangi nefndarinnar undirbúning þverpólitískrar áætlunar um minnkað vægi verðtryggingar á íslenskum fjármálamarkaði. Umrædd áætlun verði lögð fram sem þingmál og stefnt að framlagningu þess fyrir 15. febrúar 2012.
MT sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi.
SkH var staddur erlendis vegna annarra þingstarfa.
MSch var staddur erlendis.
EyH sat fundinn í stað BJJ sem var fjarverandi.
ÁÞS sat fundinn í stað ÞrB sem vék af fundi um kl. 15:00.
OH og AT véku af fundi að lokinni afgreiðslu á 2. dagskrármáli fundarins.