36. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 21. desember 2012
kl. 15:00
Mættir:
Helgi Hjörvar (HHj) formaður, kl. 15:00Eygló Harðardóttir (EyH), kl. 15:00
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 15:00
Lilja Mósesdóttir (LMós), kl. 15:00
Magnús Orri Schram (MSch), kl. 15:00
Pétur H. Blöndal (PHB), kl. 15:00
Skúli Helgason (SkH), kl. 15:00
JBjarn og LRM voru fjarverandi.
MT áheyrnarfulltrúi sat ekki fundinn.
Nefndarritari: Eiríkur Áki Eggertsson
Bókað:
1) 468. mál - ráðstafanir í ríkisfjármálum Kl. 15:00
Á fundinn komu:
- Frá kl. 15:00 til 15:45 - Gunnar Valur Sveinsson, Bergþór Karlsson, Sigurður Berndsen frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Bjarki Hallson og Einar Hallson frá FairCar. Gestirnir svöruðu spurningum nefndarmanna varðandi 19. gr. frumvarpsins og fyrirhugaðar breytingar á þeirri grein.
- Frá kl. 15:45 til 15:50 - Gunnar Valur Sveinsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar. Gesturinn svarðaði spurningum nefndarmanna varðandi gildistöku 1. gr. frumvarpsins.
- Frá kl. 15:50 til 16:30 - Vilhjálmur Egilsson frá Samtökum atvinnulífsins og Guðjón Rúnarsson, Stefán Pétursson, Yngvi Örn Kristinsson og Jóna Björk Guðnadóttir frá Samtökum fjármálafyrirtækja. Gestirnir svöruðu spurningum nefndarmanna varðandi 4. gr. frumvarpsins og fyrirhugðaðar breytingar á þeirri grein.
Maríanna Jónasdóttir, Ögmundur Hrafn Magnússon og Ingibjörg Helga Helgadóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Guðrún Jenný Jónsdóttir og Jón Guðmundsson frá ríkisskattstjóra sátu allan fundinn.
2) Önnur mál. Kl. 16:45
Á fundinn kom Maríanna Jónasdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti til að svara spurningum nefndarmanna varðandi tilgreinda þætti í máli nr. 101 (skattar og gjöld) og máli nr. 468 (ráðstafanir í ríkisfjármálum).
Fundi slitið kl. 17:10